Back to search

Reykjavík University

Afkastamælingar á yngri landsliðskonum Íslands í handknattleik : mælingar á U-17 og U-19 ára landsliðum kvenna með tveggja ára millibili

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort frammistöðu munur væri á líkamlegri getu U-17 ára liðs Íslands með tveggjar ára milli bili sem og hjá U-19 ára lið Íslands. Samanburður var gerður á mælingum á leikmönnum fæddum árið 1999 og yngri samanborið við leikmenn fædda 2002 og yngri. Einnig var gerður samanburður á leikmönnum fæddum 1998 og yngri samanborið við leikmenn fædda 2000 og yngri. Mælingarnar voru framkvæmdar með tveggja ára millibili árin 2017 og 2019. Kennarar á íþróttafræðisviði og nemendur við skrif á B.s ritgerð sinni í Háskólanum í Reykjavík (HR) sáu um mælingarnar með hjálp frá nemendum á fyrsta og öðru ári í HR. Heildarfjöldi þátttakanda var 72 stúlkur. Niðurstöður sýndu fram á að marktækur munur væri á lóðréttu stökkprófi, gripstyrk og í 10 metra spretthlaupi í U-17 mælingunum. Niðurstöður U-19 mælinganna sýndu fram á að marktækur munur væri á lóðréttu stökkprófi og skothraða frá sjö metrum. Miðað við þessar niðurstöður má því álykta að ekki séu bætingar á mælingum milli ára hjá yngri landsliðum Íslands. Niðurstöður sýna svipaðar niðurstöður milli hópa sem hægt er að nota sem viðmiðunartölur í framtíðar rannsóknum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Erlingsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38822
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38822

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Erlingsdóttir 1998-. Afkastamælingar á yngri landsliðskonum Íslands í handknattleik : mælingar á U-17 og U-19 ára landsliðum kvenna með tveggja ára millibili. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38822