Abstract
dc:description.abstractÍ nútíma samfélagi er nauðsynlegt fyrir einstaklinga að búa að góðu fjármálalæsi. Slæmar fjárhagslegar ákvarðanir geta leitt til alvarlegra afleiðinga, bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Því er mikilvægt að einstaklingar nái sem fyrst tökum á grunnþekkingu í fjármálum og geti tekið upplýstar fjárhagslegar ákvarðanir. Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að fjármálalæsi á Íslandi er ábótavant og að aðgerðir séu ekki að skila nægum árangri. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna hvort fjármálalæsi ungmenna í 8.-10. bekk á Íslandi væri ábótavant. Lögð var fyrir könnun í nokkrum grunnskólum landsins og voru niðurstöður bornar saman við stöðu ungmenna í fjármálalæsi í öðrum löndum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þekking þátttakenda á viðfangsefninu var ekki mikil. Þá kom enn fremur í ljós að kennsla í fjármálalæsi hér á landi þarfnast úrbóta ef efla eigi fjármálalæsi Íslendinga til muna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Írena Björk Gestsdóttir 1998-
- Rakel Guðjónsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38806
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38806