Reykjavík University
Rafrænir hluthafafundir : er þörf á lagabreytingu með tilliti til örrar tækniþróunar síðustu ára og að fenginni reynslu á tímum heimsfaraldurs af völdum COVID-19?
Abstract
dc:description.abstractÞann 11. mars 2020 lýsti alþjóðastofnun WHO því yfir að faraldur af völdum COVID-19 veirunnar flokkaðist nú sem heimsfaraldur. Síðustu ár hefur tækninni fleygt fram á mörgum sviðum og er notkun rafrænna lausna í daglegu lífi orðin æ algengari. Með heimsfaraldrinum hefur notkun tækninnar aukist enn frekar, t.a.m. notkun fjarfundarbúnaðar við hin ýmsu störf og fundarhöld. Í ritgerð þessari er leitast við að leiða í ljós hvaða reglur gilda um rafræna hluthafafundi og meta hvort þörf sé á lagabreytingu með tilliti til örrar tækniþróunar síðustu ára og að fenginni reynslu á tímum heimsfaraldurs af völdum COVID-19. Í íslenskum lögum er að finna heimildir til að halda slíka fundi í 80. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Meginreglan er sú að félagsstjórn getur ákveðið að halda rafrænan hluthafafund að hluta til, ef ekki er kveðið á um annað í samþykktum félags. Á hinn bóginn þarf ákvörðun hluthafafundar til að halda rafrænan hluthafafund að öllu leyti. Lítil notkun virðist hafa verið á þessum heimildum fyrir tíma heimsfaraldursins og er því tilefni til að skoða ákvæði 80. gr. a. með tilliti til COVID-19. Helstu niðurstöður eru þær að telja má að ekki sé þörf á lagabreytingu á íslenskum hlutafélagalögum, þar sem 80. gr. a. hfl. veitir nokkuð svigrúm fyrir félagsstjórn og hluthafa, að ákveða hvort haldinn verði rafrænn hluthafafundur eða ekki. Þess í stað má telja, að þörf hafi verið á breyttu og jákvæðu hugarfari á notkun tækninnar og er ástæða til að ætla að það hafi að miklu leyti tekist í heimsfaraldri af völdum COVID-19.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Katrín Ingvadóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38616
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38616