Back to search

Reykjavík University

Breytingar á 15. gr. samkeppnislaga með innleiðingu sjálfsmatskerfis : fyrirtæki á jarðsprengjusvæði?

Abstract

dc:description.abstract

Þann 1. janúar 2021 tóku í gildi lög nr. 103/2020 um breytingu á samkeppnislögum nr. 44/2005. Með þeim var gerð sú grundvallarbreyting að horfið var frá áralangri framkvæmd þar sem Samkeppniseftirlitið veitti undanþágur frá bannákvæðum samkeppnislaga og tekið var upp svokallað sjálfsmatskerfi (e. self-assessment). Er það því í höndum hlutaðeigandi fyrirtækja meta það sjálf hvort að skilyrði fyrir undanþágu samkvæmt 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga séu uppfyllt. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á sjálfsmatskerfið og hvernig framtíðar fyrirkomulagi verður háttað í framkvæmd. Sérstök áhersla verður lögð á framkvæmdina í evrópskum samkeppnisrétti þar sem kerfið hefur verið við lýði frá árinu 2004. Þá verður ný sáttarheimild samkeppniseftirlitsins tekin til ítarlegrar skoðunar, hvernig hún getur komið til góðs og hún borin saman við sambærilega heimild framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ritgerðin er byggð upp á þann hátt að í öðrum kafla er gert grein fyrir banni samkeppnislaga við ólögmætu samráði fyrirtækja og samtaka fyrirtækja samkvæmt 10. og 12. gr. laganna, samhengisins vegna. Í þriðja kafla eru þeim skilyrðum sem samstarf fyrirtækja þarf að uppfylla til að njóta mögulegrar undanþágu frá bannákvæðum samkeppnislaga á grundvelli 15. gr. gerð ítarleg skil. Í fjórða kafla er framkvæmd samkeppnisyfirvalda á undanþágubeiðnum rekin með sérstakri áherslu á þau skilyrði sem slíkum undanþágum eru settar. Í fimmta kafla er undanþágum í evrópskum samkeppnisrétti gerð skil og þeirri framkvæmd sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur markað. Í sjötta kafla er vikið að áðurnefndum breytingum á 15. gr. og innleiðingu sjálfsmatskerfisins í íslenskan rétt. Loks verða helstu niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman í sjöunda kafla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Darri Sigþórsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38597
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38597

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Darri Sigþórsson 1997-. Breytingar á 15. gr. samkeppnislaga með innleiðingu sjálfsmatskerfis : fyrirtæki á jarðsprengjusvæði?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38597