Back to search

Reykjavík University

Markaðssetning til barna í gegnum samfélagsmiðla með tilliti til kauphegðunar foreldra á Internetinu

Abstract

dc:description.abstract

Samfélagsmiðlar eru orðnir stór partur af okkar daglega lífi og eru börn þar ekki undanskilin. Aðgengi fólks að samfélagsmiðlum gerir það að verkum að fyrirtæki nýta sér vettvanginn til þess að nálgast markhópa sína á auðveldan og hagstæðan hátt. Í þessari rannsóknarritgerð er ætlað að skoða markaðssetningu til grunnskólabarna á Íslandi frá bæði samfélagsmiðlum og áhrifavöldum á Internetinu. Áhersla var einnig lögð á hvort og þá hversu mikil áhrif börn hafa á kauphegðun foreldra sinna og þá sérstaklega þegar kemur að vörum sem auglýstar hafa verið á samfélagsmiðlum. Einnig var skoðað hvort hjúskaparstaða og atvinna foreldra hefðu áhrif á þann tíma sem börnin eyddu á Internetinu og hvort að börn sem eyða meiri tíma á netinu biðja foreldra sína oftar um að kaupa vörur sem auglýstar eru þar. Þátttakendur þessarar rannsóknar (N=228) voru foreldrar grunnskólabarna á Íslandi sem nálgast var í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook. Það kom í ljós að YouTube, TikTok og Snapchat eru vinsælustu samfélagsmiðlarnir hjá grunnskólabörnum á Íslandi og þau eyða að meðaltali 11 til 20 klukkustundum á Internetinu á viku. Einnig kom í ljós að um helmingur grunnskólabarna á Íslandi biðja foreldra sína að kaupa vörur sem þau hafa séð auglýstar á samfélagsmiðlum og eru helstu vöruflokkarnir leikföng og tölvuleikir. Það kom á óvart að aldur og fjöldi barna á heimili virðist ekki skipta máli hvað varðar kauphegðun foreldra á netinu. Einnig kom á óvart að íslensk grunnskólabörn, sem eiga foreldra í hjónabandi eða sambúð og í fullu- eða hlutastarfi virðast hafa meiri áhrif á kauphegðun foreldra sinna þegar kemur að vörukaupum í gegnum Internetið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Ösp Halldórsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37516
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37516

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Ösp Halldórsdóttir 1990-. Markaðssetning til barna í gegnum samfélagsmiðla með tilliti til kauphegðunar foreldra á Internetinu. 2021. http://hdl.handle.net/1946/37516