Back to search

Reykjavík University

Fyrirbyggjandi fjárhagsleg endurskipulagning : áhrif tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 á réttarúrræði félaga til fjárhagslegrar endurskipulagningar

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarið hafa verið að ryðja sér til rúms úrræði sem fela í sér fjárhagslega endurskipulagningu til að endurheimta rekstrarhæfni félaga í fjárhagsörðugleikum, einkum fyrirbyggjandi endurskipulagningu. Með hugtakinu fyrirbyggjandi er vísað til þess að tilgangur endurskipulagningarinnar er að fyrirbyggja ógjaldfærni í stað þess að vinna bug á ógjaldfærni. Með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 er miðað að því að samræma málsmeðferð slíkra úrræða á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á væntanleg áhrif tilskipunarinnar á réttarúrræði félaga hér á landi til fjárhagslegrar endurskipulagningar við innleiðingu tilskipunarinnar í íslenskan rétt. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er að innleiða þurfi nýja málsmeðferð í lög nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Málsmeðferðin þarf að vera aðgengileg þegar líkur eru á ógjaldfærni skuldara og veita honum og kröfuhöfum tækifæri til að útbúa og semja um endurskipulagningaráætlun. Dómstólar meta hvort nauðsynlegt sé að skipa sérfræðing til aðstoðar fyrir skuldara og kröfuhafa við gerð og viðræður um endurskipulagningaráætlun. Til þess að liðka fyrir samningaviðræðum er skuldara veitt heimild til að óska eftir greiðslustöðvun. Í lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. er þegar mælt fyrir um slíka heimild. Þó er nauðsynlegt að gera tilteknar breytingar á ákvæðum laganna um heimildina til að hún samræmist tilskipuninni. Endurskipulagningaráætlunin getur, samkvæmt tilskipuninni, falið í sér margs konar ráðstafanir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Leggja má áætlunina fyrir alla kröfuhafa og hluthafa félagsins til atkvæðagreiðslu, en einnig fyrir afmarkaðan hóp þeirra. Þegar endurskipulagningaráætlun hefur áhrif á fleiri en einn flokk kröfuhafa skal skipta þeim niður í atkvæðaflokka og fer fram atkvæðagreiðsla í hverjum flokki fyrir sig. Með staðfestingu dómstóla á endurskipulagningaráætlun er hægt að binda hendur mótfallinna kröfuhafa. Þá er jafnframt undir ákveðnum kringumstæðum hægt að binda atkvæðisflokk þar sem áskilinn meirihluti hefur hafnað áætlun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristján Óli Ingvarsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36624
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36624

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristján Óli Ingvarsson 1995-. Fyrirbyggjandi fjárhagsleg endurskipulagning : áhrif tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 á réttarúrræði félaga til fjárhagslegrar endurskipulagningar. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36624