Back to search

Reykjavík University

Samningatækni : mikilvæg hæfni verkefnastjóra

Abstract

dc:description.abstract

Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og krefjandi og í síbreytilegum heimi og kjósa fyrirtæki í auknum mæli að nýta verkefnastjórnun og verkefnastjóra í skipulagsheild sinni til að sinna sífellt flóknari og krefjandi verkefnum. Því er mikilvægt að verkefnastjórar búi yfir ýmsum hæfnisþáttum, bæði mjúkum og hörðum, til að leysa verkefnastjórnunina farsællega af hendi. Undanfarin ár hafa hinir mjúku eiginleikar fengið aukið vægi svo sem samningatækni. Markmið þessa verkefnis er að rýna hvernig verkefnastjórar í íslensku atvinnulífi nýta sér samningatækni í störfum sýnum og hvernig sú hæfni samræmist bæði Grunnviðmiðum um hæfni verkefnastjóra sem gefin eru út af Alþjóðaverkefnastjórnarsambandinu (IPMA) og fræðum um samningatækni. Í þessum tilgangi voru tekin viðtöl við þrjá verkefnastjóra sem starfa í mismunandi geirum atvinnulífsins. Viðtölin gáfu til kynna að verkefnastjórarnir eru að nýta sér samningatækni í starfi og töldu mikilvægt að búa yfir þessari hæfni til að geta sinnt starfi sínu. Þá mátti greina að verkefnastjórarnir eru að skilgreina óskaniðurstöðu, sýna samkennd og beita sannfæringakrafti til að viðhalda trausti og jákvæðum viðskipta og starfstengslum til ná sameiginlegu markmiði teymisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Guðmundsdóttir 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36403
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36403

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Silja Guðmundsdóttir 1972-. Samningatækni : mikilvæg hæfni verkefnastjóra. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36403