Reykjavík University
Áhrif innkomu Costco á fyrirtæki sem starfa á heildsölu-, eldsneytis- og dagvörumarkaði á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að skoða hvort íslensk fyrirtæki sem starfa á heildsölu-, eldsneytis- og dagvörumarkaði á Íslandi urðu fyrir rekstrar- og samkeppnislegum áhrifum með innkomu Costco til landsins. Við komu Costco var mikil umræða um bensínverð þar sem lítil samkeppni var milli olíufélaganna á Íslandi en flestar bensínstöðvarnar voru með svipað verðlag. Ljóst var að Costco hafði mögulega áhrif á fleiri geira en bara matvörugeirann þar sem fyrirtækið er einnig með apótek, hjólbarðaþjónustu og bensínstöð. Í þessari rannsókn voru valin nokkur fyrirtæki sem starfa á heildsölu-, eldsneytis- og dagvörumarkaði. Notast var við eigindlega aðferðafræði en rannsóknin byggist fyrst og fremst á viðtölum við fjóra stjórnendur sem starfa í þessum geirum. Til þess að greina viðtölin var greiningaraðferð fyrirbærafræðinnar notuð með það að markmiði að finna þema sem endurspeglar sameiginlega upplifun viðmælenda. Einnig var stuðst við blaðagreinar og skýrslur sem varpa ljósi á hver áhrifin voru á fyrirtækin. Reynt er að meta hvort fyrirtækin höfðu vanmetið eða ofmetið þau áhrif sem þau urðu fyrir með komu Costco til landsins og hvort áhrifin hafi verið tímabundin eða langvarandi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós kjarnann: Áhrif Costco voru almennt tímabundin og nýju jafnvægi hefur verið náð. Niðurstöður gefa til kynna að bæði heildsölu- og dagvörumarkaðurinn hafi upplifað tímabundin áhrif á meðan eldsneytismarkaðurinn virðist upplifa langvarandi áhrif á þeim bensínstöðvum sem eru staðsettar næst Costco í Garðabæ. Nýja jafnvægið einkennist af auknu þjónustustigi og umhverfisvakningu. Flestir viðmælendur voru sammála um að góð þjónusta sé lykillinn að samkeppnisforskoti. Tveir viðmælendur nefndu að umhverfisvakning neytenda spili stóran þátt í hvernig íslenskum fyrirtækjum vegnar. Mikil samþjöppun fyrirtækja hefur átt sér stað og telja viðmælendur að það muni halda áfram næstu ár. Færri minni samkeppnisaðilar eru á heildsölumarkaðnum sem bendir til þess að erfitt sé að koma inn á markað vegna aukinnar samkeppni og verðsamkeppni. Mikil aukning í verðvitund neytenda hefur aukið verðsamkeppni og með tilkomu netverslana geta neytendur gert verðsamanburð með einföldum hætti og ýtt undir að fyrirtæki bjóði samkeppnishæft verð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Hildur Björk Gunnarsdóttir 1967-
- Vigdís Halla Björgvinsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36058
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36058