Back to search

Reykjavík University

Skipan dómara við Landsrétt : hvað fór úrskeiðis?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um og leitast við að greina hvað fór úrskeiðis þegar 15 dómarar voru skipaðir við Landsrétt þann 8. júní 2017, þegar dómstólnum var komið á fót. Í ritgerðinni verður greint frá sögu embættisveitinga og hlutverki ráðherra, ásamt því að farið verður yfir ráðherraábyrgð og sögu hennar. Fjallað verður um dómstólalög nr. 15/1998 og þær breytingar sem gerðar hafa verið á þeim, sérstaklega með tilliti til skipana í embætti dómara. Farið verður yfir hvernig breytingunum var ætlað að hafa áhrif á hlutleysi og sjálfstæði dómstóla og gera greinargóð skil á milli framkvæmdar- löggjafar- og dómsvaldsins. Einnig verður farið yfir ný lög um dómstóla nr. 50/2016. Þá er farið yfir hvernig skipun dómara er háttað á Norðurlöndunum og hvort við megum taka eitthvað til okkar frá nágrannaþjóðum okkar. Velt verður við þeim steini hvort að framkvæmdarvaldið sé með of mikil ítök þegar kemur að skipan í embætti dómara og skapi þar með hættu varðandi hlutleysi og sjálfstæði dómstólanna. Rík krafa er gerð um hlutleysi og sjálfstæði dómstólanna og mikilvægt að málsmeðferð við skipun dómara sé hlutlaus og eftir málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga og annarra laga sem við eiga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Bjarný Jónsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36029
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36029

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Bjarný Jónsdóttir 1988-. Skipan dómara við Landsrétt : hvað fór úrskeiðis?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36029