Reykjavík University
Siðareglur fyrir alþingismenn : samspil siðareglna við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um siðareglur fyrir alþingismenn og samspil þeirra við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna. Í ritgerðinni er annars vegar leitast eftir að svara undir hvaða kringumstæðum geta siðareglur fyrir alþingismenn sett tjáningu þeirra skorður og hins vegar, hvort beiting siðareglna gæti leitt til takmörkunar á tjáningarfrelsi þingmanna. Áhersla var lögð á tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna utan Alþingis. Alþingismenn settu sér siðareglur í mars 2016. Tilgangur þeirra er að efla gagnsæi í störfum alþingismanna og ábyrgðarskyldu þeirra sem og traust og tiltrú almennings á Alþingi. Siðareglurnar gilda við opinbera framgöngu þingmanna og snerta skyldur þeirra sem þjóðkjörinna fulltrúa og er þeim ætlað að koma til fyllingar öðrum lögum og reglum sem gilda um alþingismenn. Þingmenn njóta víðtæks tjáningarfrelsis og þarf mikið að koma til svo heimilt sé að skerða tjáningu þeirra og takmarka tjáningarfrelsi þeirra. Siðareglur hafa ekki stöðu laga og geta þar af leiðandi ekki takmarkað tjáningarfrelsi þingmanna innan Alþingis. Þær geta þó sett tjáningu þeirra, utan þingsins, ákveðnar skorður. Lítið hefur reynt á siðareglurnar frá gildistöku þeirra og litast niðurstöður ritgerðarinnar nokkuð af þeirri staðreynd. Þó gefur sú framkvæmd, sem hefur átt sér stað, ákveðnar vísbendingar um hvenær mögulegt sé að setja tjáningunni skorður. Við mat á því hvort skerðingin sé heimil þarf einkum að líta til hvort tjáningin eigi erindi við almenning, að hverjum hún beinist og sannleiksgildi ummæla. Af núverandi framkvæmd siðareglnanna er ekki að sjá að beiting þeirra takmarki tjáningarfrelsi þingmanna. Hins vegar verður að gæta þess að þingmenn fái það ekki á tilfinninguna að siðareglurnar ógni tjáningarfrelsi þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn Bóel Stefánsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36024
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36024