Back to search

Reykjavík University

Úrlausn ágreiningsmála innan íþróttahreyfingarinnar

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar eru dómstólar innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, og sérstök áhersla er lögð á dómstóla Knattspyrnusambands Íslands. Dómstólarnir eru skoðaðir út frá því hvort að þeir standist 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Þá er það rannsakað hvort að þvinguð félagsaðild að sérsamböndum innan íþróttahreyfingarinnar standist 74. gr. stjórnarskrárinnar. Einnig er kannað hvort að möguleiki sé á því að fara með ágreining sem sprettur upp innan íþróttahreyfingarinnar fyrir almenna dómstóla. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er afmarkað með þremur rannsóknarspurningum sem ritgerðinni er ætlað að svara. Rannsóknarspurningarnar eru eftirfarandi: Er möguleiki að leita til almennra dómstóla með ágreining sem rís innan íþróttahreyfingarinnar? Virða dómstólar innan íþróttahreyfingarinnar stjórnarskrárvarinn rétt manna til réttlátrar málsmeðferðar sem fram kemur í 70. gr. stjórnarskrárinnar? Stenst hin þvingaða félagsaðild að sérsambandi innan íþróttahreyfingarinnar 74. gr. stjórnarskrárinnar um félagafrelsi? Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru eftirfarandi. Í fyrsta lagi er undir ákveðnum kringumstæðum mögulegt að fara með ágreining sem sprettur upp innan íþróttahreyfingarinnar fyrir almenna dómstóla hér á landi, en meginreglan er þó sú að mál klárist innan íþróttahreyfingarinnar. Hins vegar hefur ákvæði sem undanskilur dómstóla frá ákveðnum ágreiningsefnum talist standast. Í öðru lagi er margt sem bendir til þess að ákvæði 70. gr. sé ekki virt innan íþróttahreyfingarinnar meðal annars með vísan til Court of Arbitration for Sports (CAS) og þeirra breytinga sem hafa átt sér stað innan þess dómstóls frá stofnun hans. Þá er aðallega vísað til máls Pechstein sem meðal annars var rekið fyrir CAS og síðar Mannréttindadómstól Evrópu. Á þetta hefur ekki reynt með beinum hætti fyrir dómstólum á Íslandi en vísbendingar eru þess efnis að mögulega standist dómstólar innan íþróttahreyfingarinnar ekki áðurgreint ákvæði stjórnarskrárinnar, en þessu er þó ekki hægt að svara með fullri vissu. Í þriðja lagi er fjallað um mögulega þvingun til þess að vera aðili að sérsambandi til þess að eiga þann möguleika að geta stundað íþróttir á Íslandi. Sá háttur sem hafður er á hér á landi hefur hins vegar verið talinn standast 74. gr. stjskr. og þvingunin hefur verið talin réttlætanleg.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björgvin Stefán Pétursson 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36017
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36017

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björgvin Stefán Pétursson 1992-. Úrlausn ágreiningsmála innan íþróttahreyfingarinnar. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36017