Back to search

Reykjavík University

Aðgangur almennings og fjölmiðla að þinghöldum í sakamálum : heimild til að kæra úrskurði um opin eða lokuð þinghöld

Abstract

dc:description.abstract

Til að tryggja réttláta málsmeðferð fyrir dómi skal þinghaldi vera háttað svo að það sé opið almenningi. Sá réttur endurspeglar meginregluna um opinbera málsmeðferð. Þessi regla er tryggð í 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994 og 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í henni felst að almenningur, sem og fjölmiðlar, geta mætt í dómsali og heyrt hvað þar fer fram. Þó er ekki algengt að almenningur mæti í dómsali og því hafa fjölmiðlar mikilvægu hlutverki að gegna sem fulltrúar almennings þar í stað. Fjölmiðlar mæta í dómsali og fjalla um það sem þar fer fram í blöðum, útvarpi, sjónvarpi og netmiðlum. Það er undantekning frá meginreglunni um opinbera málsmeðferð að dómari geti á grundvelli 1. mgr. 10. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, lokað þinghaldi telji hann það nauðsynlegt. Í þessari ritgerð verður fjallað um meginregluna um opinbera málsmeðferð og undantekningar frá henni. Þá verður einnig fjallað um hlutverk fjölmiðla og heimildir þeirra til að fjalla um sakamál og nafngreiningu sakaðra manna. Þá verður reynt að varpa ljósi á hvort fjölmiðlar geti á grundvelli 2. mgr. 10. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, óskað eftir úrskurði um opin eða lokuð þinghöld. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að dómstólar hafi almennt viðurkennt að fjölmiðlar hafi hagsmuni af því að málsmeðferð sé opin. Til að meginreglan um opinbera málsmeðferð nái markmiði sínu er nauðsynlegt að fjölmiðlar hafi frjálsan aðgang að dómstólum og þar af leiðandi upplýst almenning um gang og stöðu sakamála.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birna Mjöll Styrmisdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36004
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36004

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birna Mjöll Styrmisdóttir 1993-. Aðgangur almennings og fjölmiðla að þinghöldum í sakamálum : heimild til að kæra úrskurði um opin eða lokuð þinghöld. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36004