Back to search

Reykjavík University

Greining mælinga á notkun og notendaupplifun á íslenskum vefjum

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur: Í þessari rannsókn munu rannsakendur greina mælingar á notkun og notendaupplifun á Íslenskum vefjum. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvort íslensk fyrirtæki og stofnanir séu að safna gögnum um notendur og notkun síns vefs og þá hvernig þessi gögn komi til með að nýtast þeim. Skoðað verður hvort munur sé á fyrirtækjum og stofnunum hvað varðar mælingar á notendaupplifun og hvort að aldur og stærð þeirra hafi áhrif. Einnig verður farið yfir viðhorf fólks innan hugbúnaðariðnaðarins á GDPR og hvaða áhrif reglugerðin hefur haft á íslenska vefi og þeirra notendur. Aðferðir: Niðurstöður rannsóknarinnar eru byggðar á viðtölum og spurningalistakönnun. Í byrjun rannsóknar voru tekin fjögur viðtöl við fólk innan hugbúnaðariðnaðarins. Markmið viðtalanna var að fá innsýn í viðfangsefnið og fá aðstoð við gerð spurningalistakannanar, sem síðan var send með tölvupósti á fyrirtæki og stofnanir. Í lokin voru tvö viðtöl tekin til viðbótar til þess að aðstoða rannsakendur við túlkun á niðurstöðum rannsóknarinnar. Viðtölin voru því í heildina sex talsins og voru þau hálf-opin (e. semi-structured) og gögnin greind með þemagreiningu. Niðurstöður: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að flest fyrirtæki og stofnanir safna gögnum um notkun síns vefs og rúmlega helmingur þeirra safna gögnum um notendur hans. Aðeins helmingur þátttakenda spurningalistakannanarinnar segjast mæla notendaupplifun. Niðurstöður greina frá því að stofnanir mæla notendaupplifun hlutfallslega oftar en fyrirtæki og að stærð þeirra og aldur skiptir einnig máli. Stór fyrirtæki eru líklegri en ella til þess að mæla notendaupplifun sem og vefir sem hafa verið starfræktir í minna en eitt ár.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Helga Hilmarsdóttir 1988-
  • Kara Líf Ingibergsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34912
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34912

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Hilmarsdóttir 1988-; Kara Líf Ingibergsdóttir 1996-. Greining mælinga á notkun og notendaupplifun á íslenskum vefjum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34912