Reykjavík University
Cognitive behavioral group therapy for general anxiety disorder : effectiveness study at the Icelandic Center for Treatment of Anxiety Disorders
Abstract
dc:description.abstractHelsta markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hugræn atferlismeðferð í hóp hefði áhrif á einkenni almennra kvíðaröskunar hjá íslensku fullorðnu fólki. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi varðandi hugræna atferlismeðferð í hóp og engar á sértækri hugrænni atferlismeðferð í hóp fyrir fólk með almenna kvíðaröskun. Rannsóknin var gerð á klínísku úrtaki sem samanstóð af 33 þátttakendum (Meðalaldur = 35.9; Spönn: 19 – 66 ár), 30 konum (90.9%) og 3 körlum (9.1%). Öll fylltu þau út spurningalista sem metur einkenni almennra kvíðaröskunar, áhyggjur og óþol fyrir óvissu. Spurningalistarnir voru lagðir fyrir í upphafi meðferðar, á meðan henni stóð og í lok hennar, einnig í fjögurra vikna eftirfylgni. Niðurstöður voru bornar saman yfir tíma og áhrifastærðir reiknaðar fyrir mun á meðalskorum þátttakenda við upphaf og lok meðferðar. Niðurstöður bentu til að meðferðin hefði meðal áhrif á almenna kvíðaröskun (d = 0.68) og óvissuóþol (d = 0.61). Skor þátttakenda lækkuðu á öllum kvörðum sem styður það að meðferðin hafi verið árangursrík. Efnisorð: Almenn kvíðaröskun, óvissuóþol, hugræn atferlismeðferð, hópmeðferð, fullorðnir, árangursmat
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sif Ragnarsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34816
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34816