Back to search

Reykjavík University

Álagning fjallskila : samræmist álagning fjallskila skilyrðum um álagningu þjónustugjalda?

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur ritgerðarinnar er að athuga hvort álagning fjallskila sé í eðli sínu þjónustugjald og samræmist þeim skilyrðum sem álagningu þjónustugjalda eru sett. Auk þess verður leitast við að varpa ljósi á þau sérstöku gjöld sem fjallskil eru og sögulegar forsendur þess. Litið verður til dómaframkvæmdar héraðsdómstóla landsins og álita umboðsmanns Alþingis. Ekki hefur reynt á gjaldtöku fjallskila fyrir lands- eða hæstarétti, einkum sökum þess að áfrýjunarfjárhæð hefur ekki verið náð. Fjallskil hafa í aldanna rás skipað stóran sess í sauðfjárbúskap hérlendis. Í gegnum aldirnar hafa búskaparhættir og búseta til sveita breyst, auk þess sem lagareglurnar hafa lítillega breyst. Fjallskil byggja í grunninn á því að verið sé að greiða fyrir þá þjónustu að afréttir séu smalaðir og fé sé með þeim hætti komið til byggða. Fjallskilalögin kveða á um að nánari útfærsla þeirra reglna sem þar er að finna eigi að vera í fjallskilasamþykktum. Komist var að þeirri niðurstöðu að fjallskilasamþykktir uppfylli ekki þann skýrleika og nánari útfærslu á lögunum, sem fram hefur komið í framkvæmd að skuli vera til staðar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar byggja á því að um sé að ræða mjög sérstakt gjald sem fellt hefur verið undir þjónustugjald hingað til. Gjaldheimild fjallskila uppfyllir flest þau skilyrði sem þjónustugjöldum eru sett nema skýrleika og þá kröfu að allir gjaldendur séu að njóta þeirrar þjónustu sem upprekstrarrétturinn hefur uppá að bjóða. Heldur hafi upprekstrarréttarhafar hag af þjónustunni. Höfundur telur að um sé að ræða sérstakt „hagsmunagjald“ þeirra sem upprekstrarrétt eiga. Þegar gjald er lagt á aðila skv. 2. ml. 42. gr. fjallskilalaga sé um að ræða gjald til að viðhalda upprekstrarréttinum auk þess sem huga skal að sameiginlegum hagsmunum rétthafa á afréttum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnhildur Jónsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34769
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34769

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnhildur Jónsdóttir 1991-. Álagning fjallskila : samræmist álagning fjallskila skilyrðum um álagningu þjónustugjalda?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34769