Back to search

Reykjavík University

Beiting samkeppnisreglna í litlum hagkerfum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður fjallað um samkeppnisreglur sem notaðar eru af vestrænum þjóðum í dag. Kannaðar verða rætur þeirra reglna, en tilgangur þess er að komast að því hvaða sjónarmið lágu að baki regluverksins sem gildir um samkeppnisrétt. Það er ekki víst að þau sjónarmið sem lágu að baki reglum samkeppnisréttar eigi jafn vel við hagkerfi sem eru mun minni en þau sem bjuggu reglurnar til. Það er staðreynd að flest ríki í dag styðjast við samkeppnisreglur stærri ríkja eins og t.d Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Skoðað verður hver helstu vandamál samkeppnisréttar séu á litlum mörkuðum og í kjölfarið verður skoðað reglurnar sem gilda um slíka markaði. Einna helst verða kannaðar þær reglur sem gilda um samruna fyrirtækja og sömuleiðis reglur sem gilda um markaðsráðandi stöðu og lagt mat á hvort að gildandi reglur séu til þess fallnar að hámarka velferð neytenda í litlum hagkerfum. Í framhaldinu er litið til réttarframkvæmdar bæði stærri ríkja og þeirra minni, í þeim tilgangi að komast að því hvort að taka þurfi tillit til stærðar hagkerfisins og markaðsaðstæðna sem einkenna lítil hagkerfi. Að lokum er dregin saman niðurstaða um hvað það er sem skiptir mestu máli, varðandi mótun samkeppnisstefnu í litlum hagkerfum og gert grein fyrir því hvað sé ábótavant við að taka upp regluverk sem ekki er sniðið að aðstæðum hagkerfisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alfreð Andri Alfreðsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34727
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34727

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alfreð Andri Alfreðsson 1990-. Beiting samkeppnisreglna í litlum hagkerfum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34727