Reykjavík University
Vöruþróun á grundvelli MiFID II - Efni, innleiðing og framkvæmd vöruþróunarákvæða MiFID II
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er vöruþróun samkvæmt MiFID II tilskipuninni 2014/65/ESB. Í 3. mgr. 16. gr. tilskipunarinnar eru lagðar skyldur á verðbréfafyrirtæki og önnur fyrirtæki sem falla undir gildissvið tilskipunarinnar þess efnis að þau innleiði ákveðið vöruþróunarferli í starfsemi sína sem ætlað er að leiða til aukinnar fjárfestaverndar. Nánari útlistun á þeim kröfum sem gerðar eru í MiFID II um vöruþróun er að finna í framseldri tilskipun (ESB) 2017/593 og viðmiðunarreglum Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) um kröfur MiFID II um vöruþróun. Til stendur að innleiða MiFID II í íslenskan rétt með setningu nýrra heildarlaga í byrjun mars 2020 en þegar þetta er ritað hafa verið lögð fram drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda. Megintilgangur ritgerðarinnar er að fjalla um þau vöruþróunarákvæði MiFID II sem koma til með að verða innleidd hér á landi, greina frá því hvaða fyrirtækjum ber að fylgja þeim, bera kröfurnar saman við sambærilegar kröfur sem settar hafa verið fram af Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni (EBA) ásamt því að lýsa mögulegri framkvæmd ákvæðanna. Afleidd löggjöf sem innleidd er í íslenskan rétt á grundvelli EES-samningsins er oft efnismikil og getur haft töluverð áhrif á starfsemi fyrirtækja hér á landi, einkum þau minni. Því verður jafnframt fjallað um þær áskoranir sem innleiðing vöruþróunarákvæða MiFID II getur haft í för með sér fyrir verðbréfafyrirtæki. Frá fjármálahruninu 2008 hefur verið ríkjandi töluvert neikvætt viðhorf til verðbréfamarkaðar hér á landi. Strangar kröfur um fjárfestavernd eru mikilvægar í þeirri viðleitni að efla traust á markaðinn og trúverðugleika í verðbréfaviðskiptum. Búast má við að nýju vöruþróunarreglurnar muni koma til með að skipta þar máli. Því er mikilvægt að vel takist til við innleiðingu og framkvæmd þessara reglna hér á landi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karen Gústavsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34726
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34726