Back to search

Reykjavík University

Lagaleg ráðherraábyrgð : Landsdómur og Mannréttindadómstóll Evrópu í máli Geirs H. Haarde

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi ber heitið Lagaleg ráðherraábyrgð, Landsdómur og mannréttindadómstóll Evrópu í máli Geirs H. Haarde. Með lagalegri ráðherraábyrgð er átt við þegar ráðherra er lögum samkvæmt gert að sæta refsiábyrgð vegna embættisverka hans í starfi, sem sker sig frá hinum pólitíska anga ráðherraábyrgðar sem hann getur þurft að sæta vegna hverju því sem í starfi hans felst óháð lögum, kjósi meirihluti Alþingis að draga viðkomandi til ábyrgðar með vantraust tillögu. Í ritgerðinni spyr höfundur hvort að framkvæmd laganna fái staðist Mannréttindasáttmála Evrópu og dregur saman það helsta sem nú er vitað um efnið, að undangengnum Landsdómi, þeim fyrsta og eina sem fallið hefur á grundvelli laga um ráðherrábyrgð og laga um Landsdóm, rúmri öld frá setningu laganna. Sú framkvæmd Landsdóms, sem nánar verður lýst, var tekin til endurskoðunar hjá mannréttindadómstól Evrópu og reynir höfundur að varpa ljósi á þær niðurstöður, bæði sérstaklega og í heild sinni. Dómþoli í umræddu máli, Geir H. Haarde vann að margra mati stórsigur fyrir Landsdómi, þótt hann hafi verið sakfelldur af í einum ákærulið af tveimur. Honum gekk hins vegar ekki eins vel fyrir mannréttindadómstól Evrópu sem vísaði á bug helstu kröfum hans um að rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar hafi verið brotinn. Málmeðferð Landsdóms stendur fast í lappirnar að þessari endurskoðun undangenginni en sambærilegt fyrirkomulag úr erlendum rétti hefur verið samþykkt af mannréttindadómstól Evrópu. Þetta þýðir þó ekki að framkvæmdin sé hafin yfir alla gagnrýni enda er engin ástæða til að fylgja með í blindni þegar kemur að réttindum sakaðra manna og málsmeðferðinni sem þeir sæta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Þorsteinsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34286
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34286

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Þorsteinsson 1986-. Lagaleg ráðherraábyrgð : Landsdómur og Mannréttindadómstóll Evrópu í máli Geirs H. Haarde. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34286