Back to search

Reykjavík University

Staða ungs fólks á húsnæðismarkaðnum

Abstract

dc:description.abstract

Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi einkennist af stigvaxandi verðlagsþróun og framboðsskorti af fasteignum, þá helst minna og ódýrara íbúðarhúsnæði á viðráðanlegu verði fyrir ungt og efnaminna fólk. Orsök þessa vanda má að hluta til rekja til efnahagshrunsins sem átti sér stað 2008, þar sem hægði á uppbyggingu húsnæða eftir hrunið. Mikil fólksfjölgun hefur einnig átt sér stað frá árinu 2010 sem eykur eftirspurn fólks eftir húsnæði. Í dag er þróunin sú að ungt fólk býr lengur í húsakynnum foreldra sinna, en aldurinn fer stighækkandi milli ára. Ástæður þess eru þær að ungt fólk sækir nám í lengri tíma heldur en fyrirrennarar sínir og að erfiðara er fyrir ungt fólk í dag að eiga fyrir útborgun í íbúð, og komast í gegnum greiðslumat fyrir húsnæðisláni. Neyslumynstur hefur breyst í íslensku samfélagi, sem hefur gert ungu fólki erfitt með að leggja pening í sparnað. Farið verður yfir samanburð milli Norðurlandanna á þróun húsnæðismála og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af nágrannalöndunum. Ritgerð þessi mun varpa ljósi á viðhorf ungs fólks á húsnæðismarkaðinn á Íslandi og rýna í það hvort það sé jafn erfitt að kaupa húsnæði og álit ungmenna gerir ráð fyrir. Þá verður jafnframt farið yfir hvaða úrræði eru í boði, og hvað hefur verið gert áður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Eva Björg Bjarnadóttir 1995-
  • Hlynur Ingi Snorrason 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33824
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33824

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Björg Bjarnadóttir 1995-; Hlynur Ingi Snorrason 1996-. Staða ungs fólks á húsnæðismarkaðnum. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33824