Back to search

Reykjavík University

Hentugleiki staðlaðra mælinga til að meta líkamsástand, styrk og hreyfigetu fatlaðs afreksíþróttafólks

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur: Tilgangur þessarar þversniðsrannsóknar var að athuga hvort að stöðluð próf, sem að meta líkamsástand, styrk og hreyfigetu, henti fyrir fatlað afreksíþróttafólk. Aðferð: Þátttakendur rannsóknarinanr voru 20 talsins og æfðu þau sund eða frjálsar íþróttir. Fjöldi kvenna var 11 (55%) og fjöldi karla var 9 (45%). Aldursbil þátttakenda var 14-32 ár og var meðalaldur þátttakenda 20,6 ár. Þátttakendur voru með þroskahömlun, heilalömun, sjónskerðingu, taugahrörnunarsjúkdóm, dvergvöxt eða klofinn hrygg. Þeir þreyttu níu próf eða mælingar. Þrennar líkamsmælingar; hæð, þyngd og ummálsmælingar. Tvenn fínhreyfipróf; byggja 12 kubba turn og raða 18 kubbum á spjald. Þrenn líkamshreystipróf; armbeygjupróf, kviðkreppupróf og uppstökkspróf og próf sem metur hreyfigetu og hreyfimynstur; FMS. Niðurstöður: Niðurstöður sýna að mælingar sem meta líkamsástand henta vel fyrir íþróttafólk með fjölbreyttar fatlanir. Þegar kemur að prófum sem að meta styrk eiga sjónskertir (n=4/4) og þroskahamlaðir (n=7/7) nokkuð auðvelt með að framkvæma prófin og sama á við þegar hreyfigeta er metin. Styrktarprófin henta síður (n=5/6) sem og hreyfigetuprófin (n=3/6) þeim sem eru með miklar líkamlegar skerðingar eins og fjórlömun. Fínhreyfipróf henta betur þeim sem eru með meðalmiklar til miklar líkamlegar skerðingar eins og heilalömun (n=6/6). Umræður og ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að aðlaganir þurfi að eiga sér stað í sumum prófum, t.d. í FMS prófinu, svo að fleiri þátttakendur geti tekið þátt. Frammistaða þátttakenda í prófunum fór eftir því hversu mikil skerðing þeirra var. Prófin sem valin voru fyrir þessa rannsókn og þessa hópa hentuðu nokkuð vel þeim sem voru með þroskahömlun og heilalömun og gátu gefið ágæta mynd á líkamlegu ástandi og hreysti fatlaðs afreksfólks. Þörf er á meira aðlöguðum eða öðrum auðveldari prófum fyrir þá sem að eru með mikla líkamlega skerðingu og hafa litla hreyfigetu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Sjöfn Jónsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33571
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33571

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Sjöfn Jónsdóttir 1993-. Hentugleiki staðlaðra mælinga til að meta líkamsástand, styrk og hreyfigetu fatlaðs afreksíþróttafólks. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33571