Back to search

Reykjavík University

Samanburðarrannsókn á árangri íslenskra og erlendra sundmanna á alþjóðamótum.

Abstract

dc:description.abstract

Sund er íþrótt sem krefst mikillar tæknilegrar hæfni. Helstu atriðin sem þarf að hafa í huga þegar kemur að keppnissundi er meðalhraði, tíðni- og lengd sundtaka. Markmið rannsóknarinnar var að skoða og bera saman þessi atriði á tveimur alþjóðlegum mótum, annað á Íslandi og hitt í Budapest. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 64 sundmenn sem tóku annað hvort þátt á RIG eða HM. Tilgangur rannsóknarinnar var að sjá hvort marktækur munur væri á þessum þáttum á stórmóti á Íslandi í samanburði við heimsmeistaramót. Niðurstöður sýndu að marktækur munur var á lokatíma í öllum 50 m greinunum. Sundmenn á HM voru (3,30 – 4,04 s) hraðari en á RIG (p=0,000) og meðalhraði sundmanna á HM var (0.27-0.55m/s) hraðari en á RIG (p=0.000) á öllum sundaðferðunum. Marktækur munur var einnig á tíðni sundtaka á mínútu í bringusundi (p=0.034), lengd sundtaka í flugsundi (p=0,002), og fjölda sundtaka í flugsundi (p=0,000) og skriðsundi (p=0,002). Rannsóknin leiddi það í ljós að munur er á tíðni sundtaka sundmanna eftir því um hvaða mót er að ræða, sem gefur til kynna að þeir sem eru með hærri tíðni sundtaka eru líklegri til þess að ná betri árangri. Þörf væri á frekari rannsókn á síðustu 15 m í hverju sundi svo hægt væri að bera saman við þessa rannsókn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgir Viktor Hannesson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33515
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33515

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgir Viktor Hannesson 1994-. Samanburðarrannsókn á árangri íslenskra og erlendra sundmanna á alþjóðamótum.. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33515