Back to search

Reykjavík University

Staðgreiðsla opinberra gjalda - ábyrgð launagreiðanda : keðjuábyrgð

Abstract

dc:description.abstract

Með til komu keðjuábyrgðar launa á íslenskan vinnumarkað hefur ábyrgð launa, sem alla jafna liggur hjá vinnuveitanda sem er í samningssambandi við launþega, verið færð á notendafyrirtæki sem ekki er í beinu samningssambandi við launþega. Upptaka keðjuábyrgðar launa á rætur sínar að rekja til tilskipunar Evrópusambandsins 2014/67/EU en þar var heimildarákvæði um keðjuábyrgð launa og réttinda ákveðinna starfsmanna í afmarkaðri atvinnugrein tryggð. Við innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins í íslenskan rétt var kveðið á um víðtækari ábyrgð heldur en tilskipunin segir til um. Um er að ræða nýjung á íslenskum vinnumarkaði en víðtækt samráð var haft milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins við þær lagabreytingar sem voru gerðar sumarið 2018. Fyrir liggur frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup en í frumvarpinu er gert ráð fyrir heimild til þess að krefjast keðjuábyrgðar launa starfsmanna vegna verksamninga við hið opinbera. Vegna ákvæða í lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda kann hins vegar sá sem gengst undir keðjuábyrgð einnig að vera skylt að halda eftir staðgreiðslu opinberra gjalda og skila til ríkissjóðs. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á ábyrgð keðjuábyrgðaraðila eða notendafyrirtækis gagnvart hinu opinbera þegar kemur að staðgreiðslu opinberra gjalda vegna launagreiðslna. Í ritgerðinni er leitast við að svara því hvernig keðjuábyrgð tengist skattarétti og hvort skilaskylda staðgreiðslu launagreiðanda hvíli á þeim aðila sem vegna keðjuábyrgðar er látin bera ábyrgð á launagreiðslum þess launagreiðanda sem hann gengst í ábyrgð fyrir? Í fyrri hluta ritgerðarinnar er fjallað um skattarétt og skatteftirlit en farið verður sérstaklega yfir þær heimildir sem skattyfirvöld hafa til þess að meta samninga milli skattaðila í skattalegu tilliti og í síðari hlutanum er fjallað um átak stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins gegn félagslegum undirboðum, skattsvikum, skattundanskotum og kennitöluflakki með upptöku keðjuábyrgðar í íslenskan rétt. Meginniðurstaða ritgerðarinnar er að sá aðili sem vegna keðjuábyrgðar er látin gangast undir ábyrgð launa ber skyldur launagreiðanda og sem slíkum skal hann halda eftir staðgreiðslu og skila til ríkissjóðs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svavar Daðason 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33162
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33162

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svavar Daðason 1984-. Staðgreiðsla opinberra gjalda - ábyrgð launagreiðanda : keðjuábyrgð. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33162