Back to search

Reykjavík University

Litróf aðgæsluskyldu kaupanda í lausafjár- og fasteignakaupum og áhrif þess að kaupandi teljist sérfróður eða njóti aðstoðar sérfróðra aðila

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er að fjalla um þá fjölmörgu þætti sem geta haft þýðingu þegar metið er hvort kaupandi hafi sýnt nægjanlega aðgæslu við kaup, meðal annars áhrif þess þegar kaupandi telst sérfróður eða þegar hann nýtur aðstoðar slíkra fagaðila. Einskorðast efni ritgerðarinnar við kaup á lausafé og fasteignum. Litið verður til ákvæða laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup og laga nr. 40/2002 um fasteignakaup sem á margan hátt eru sambærileg þó svo að sömu reglur gilda ekki í öllum tilvikum. Þá verður meðal annars rýnt í dómaframkvæmd Hæstaréttar og litið til skrifa norrænna fræðimanna. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að á kaupanda lausafjár- eða fasteignar hvílir skylda til að sýna aðgæslu, bæði í aðdraganda kaupa og eftir að kaup hafa átt sér stað. Kaupanda er þó samkvæmt íslenskum rétti ekki skylt að framkvæma skoðun fyrir kaup nema í þeim tilvikum þegar seljandi hefur hvatt hann til þess. Þetta á þó ekki við hafi kaupandi gilda ástæðu til þess að sinna ekki slíkri hvatningu. Kaupanda er hins vegar alltaf skylt að framkvæma skoðun eftir að kaup hafa átt sér stað. Hvernig honum beri að framkvæma skoðun sína er háð atvikum hverju sinni en almennt verða ekki gerðar frekari kröfur til kaupanda en að hann framkvæmi fremur lauslega skoðun á því kaupandlagi sem um ræðir hverju sinni. Búi kaupandi aftur á móti yfir meiri þekkingu verða ríkari kröfur um aðgæslu gerðar og hið sama gildir ef kaupandi nýtur aðstoðar fagaðila. Af dómaframkvæmd Hæstaréttar virðist sem langt sé gengið í að meta menn sem sérfróða og því kann eftir atvikum að reynast varhugarvert fyrir kaupendur að hafa sérfróða aðila meðferðis við skoðun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnlaugur Jón Ingason 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33148
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33148

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnlaugur Jón Ingason 1992-. Litróf aðgæsluskyldu kaupanda í lausafjár- og fasteignakaupum og áhrif þess að kaupandi teljist sérfróður eða njóti aðstoðar sérfróðra aðila. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33148