Back to search

Reykjavík University

Áhrif stafrænnar markaðssetningar á ímynd fyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Stafræn markaðssetning hefur þróast jafnt og þétt í tæpa tvo áratugi og gegnir í dag afar stóru hlutverki í nútíma markaðssetningu. Fyrirtæki verða að tileinka sér stafræna markaðssetningu til vera samkeppnishæf á markaðnum. Markmið þessarar rannsóknar var að öðlast þekkingu á þeim áhrifum sem stafræn markaðssetning getur haft á ímynd fyrirtækja. Sérstaklega voru skoðuð áhrif rafræns umtals á fyrirtæki með áherslu á samfélagsmiðla. Framkvæmdar voru tvær rannsóknir, annars vegar eigindleg rannsókn og hins vegar megindleg rannsókn. Eigindlega rannsóknin var í formi hálfopinna viðtala við sérfræðinga með ólíkan bakgrunn í markaðsfræði og megindlega rannsóknin var í formi spurningakönnunar sem send var út í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook. Þátttakendur spurningakönnuninnar voru 154 talsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að rafrænt umtal hafi áhrif á ímynd fyrirtækja. Þær benda einnig til þess að áhrifin séu mismikil eftir því hvort að umtalið sé jákvætt eða neikvætt. Niðurstöður sýna enn fremur fram á að jákvætt umtal á samfélagsmiðlum sé algengara en neikvætt, að rafrænt umtal hafi áhrif á kauphegðun neytanda og að umsagnir neytenda á netinu teljist trúverðugari en upplýsingar fyrirtækja á vefsíðum þeirra. Lykilorð: Stafræn markaðssetning, samfélagsmiðlar, rafrænt umtal, ímynd fyrirtækja, kauphegðun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Andrés Már Jóhannesson 1988-
  • Ellert Heiðar Vilhelmsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33022
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33022

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andrés Már Jóhannesson 1988-; Ellert Heiðar Vilhelmsson 1987-. Áhrif stafrænnar markaðssetningar á ímynd fyrirtækja. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33022