Back to search

Reykjavík University

Söfnun á endurgjöf frá notendum : rannsókn byggð á viðtölum, notendaprófunum og könnun við fyrirtæki og notendur

Abstract

dc:description.abstract

Þó svo að vefsíða sé farin í loftið og ýmsar notendaprófanir hafa verið framkvæmdar á henni getur vefsíðan verið langt frá því að vera fullkomin. Því er aðkoma notenda á áframhaldandi þróun vefsíðu eftir að hún fer í loftið og endurgjöf þeirra á vefsíðum mjög dýrmæt bæði fyrir fyrirtæki og notendur. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar er annars vegar að kanna hvort og þá hvernig starfsfólk fyrirtækja safnar endurgjöf frá notendum og hvernig það eykur notendaupplifun á vefsíðum sínum sem þegar hafa verið teknar í notkun og hins vegar hvort og þá hvernig notendur vilja koma ábendingum varðandi vefsíður á framfæri. Framkvæmd: Þessi rannsókn er byggð á viðtölum, notendaprófunum og könnun. Tekin voru viðtöl við tíu aðila sem hafa umsjón með vefsíðum hjá sjö mismunandi fyrirtækjum. Viðtölin voru öll hálf-opin (e. semi-structured) og gögnin greind með þemagreiningu. Gerðar voru tuttugu notendaprófanir sem innihéldu nokkrar spurningar og einfalda frumgerð af ferli þar sem notandinn átti að koma á framfæri endurgjöf á vefsíðu. Send var út könnun til að greina áhuga fólks á að senda inn ábendingar er varðar vefsíður sem þeir eru notendur að. Niðurstöður: Rannsóknin sýndi að flestir viðmælendur fyrirtækjanna hafa notast við ýmis greiningartól til þess að auka notendaupplifun en fá þeirra hafa eitthvað sérstakt form á vefsíðu sinni sem óskar eftir endurgjöf frá notendum. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að notendur hafa áhuga á að skila inn endurgjöf á vefsíðum, en það virðist vanta eitthvað heildstætt form til þess. Ef einfalt endurgjafarform væri til staðar á vefsíðum myndu mun fleiri notendur nýta sér það.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Fjóla Baldursdóttir 1977-
  • Heiður Gefn Guðbergsdóttir 1990-
  • Ingimar Rolf Björnsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32318
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32318

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fjóla Baldursdóttir 1977-; Heiður Gefn Guðbergsdóttir 1990-; Ingimar Rolf Björnsson 1989-. Söfnun á endurgjöf frá notendum : rannsókn byggð á viðtölum, notendaprófunum og könnun við fyrirtæki og notendur. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32318