Back to search

Reykjavík University

Hvernig má auka framleiðni í byggingar- og mannvirkjageira á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Framleiðni er mælikvarði á hversu vel fjármagn og vinnuafl nýtast til að skapa verðmæti. Íslenskur byggingariðnaður hefur glímt við lága framleiðni um töluverðan tíma. Margir hafa bæði ritað og rætt um þetta mál hér á landi og bent á að mælingar gefi til kynna að ástandið sé langt í frá ásættanlegt. Höfundur þessarar ritgerðar gerði rannsókn, sem hluta af meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM), þar sem skýringa á minni framleiðni hér á landi en í nágrannaríkjum var leitað meðal sérfræðinga í greininni og var þar varpað ljósi á nokkrar orsakir. Í þessari ritgerð er leitast við að greina enn frekar þær ástæður sem liggja að baki. Einnig er leitast við að greina, flokka, forgangsraða og leggja drög að lausnum til að auka framleiðni hér á landi í byggingar- og mannvirkjagreinum. Verkefnið, sem er umbótamiðuð rannsókn, er unnið þannig að dregnar eru fram þær skýringar sem áður hafa verið bent á í ræðu og riti, þær lagðar fyrir fjölda sérfræðinga úr greininni, flokkaðar, greindar og þeim forgangsraðað. Þannig er ætlunin að leggja fram verkfæri sem geta nýst greininni til að hefja nauðsynlegt umbótastarf. Verkefnið hófst með meistaraverkefni höfundar í MPM námi við Háskólann í Reykjavík þar sem lagður var grunnur að þessu verkefni. Fengnir voru 20 sérfræðingar úr byggingar- og mannvirkjagreinum til að taka þátt í rýnihópum sem ætlaðir voru til að greina og forgangsraða þeim skýringum sem fram komu í báðum rannsóknum. Haldnar voru þrjár vinnustofur þar sem greiningarvinnan fór fram. Niðurstöður verkefnisins eru fimm helstu og líklegustu skýringar á minni framleiðni í 12 mismunandi flokkum virðiskeðju byggingar- og mannvirkjageirans. Flokkarnir ná til atriða eins og „Stjórnvöld og hagstjórn“, „Sveitarfélög“, „Fyrirtækin“, „Starfsmenn“, „Stjórnendur“ o.fl. Samtals eru í heild 60 atriði sem varpa ljósi á tækifæri til úrbóta. Niðurstöðurnar er hægt að nota til að beina sjónum aðila í geiranum að því hvað þarf að gera til að auka framleiðni á einstökum stöðum í virðiskeðjunni og í greininni allri. Þekking á hugtakinu framleiðni er ekki öllum töm í geiranum, og mikilvægi framleiðni ekki öllum ljóst. Hér þarf að gera umbætur og efla kennslu og umræður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hannes Frímann Sigurðsson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31390
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31390

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hannes Frímann Sigurðsson 1964-. Hvernig má auka framleiðni í byggingar- og mannvirkjageira á Íslandi?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31390