Back to search

Reykjavík University

Áhrif niðursveiflu efnahagslífs á samgöngur og skipulag : í ljósi kreppunnar á Íslandi 2008

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um þróun samgangna, umferðarskipulag og skipulag þéttbýlis (e.urban design) hér á landi með áherslu á borgarskipulag (e.city planning) í ljósi niðursveiflunnar 2008. Markmiðið er að kanna hvort efnahagskreppan árið 2008 hafi leitt til breyttrar þróunar í samgöngum og í skipulagi. Í rannsókninni verða fyrirliggjandi gögn skoðuð með því að lesa heimildir s.s. fræðigreinar, skýrslur, blaðagreinar og bækur. Við úrvinnslu rannsóknarinnar verður byggt á gögnum sem aðrir rannsakendur hafa safnað og skráð. Þróun samgangna á landinu fyrir og eftir kreppu verður skoðuð í ljósi tölulegra gagna og tölfræðileg greining gerð á þeim. Gerðar hafa verið nokkuð margar rannsóknir um framvindu kreppunnar 2008 en færri rannsóknir eru til þar sem áhersla hefur verið lögð á að skoða einstaka afmarkaða þætti eins og til dæmis umferð og skipulag. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að hugsanlega hafi uppgangur áranna eftir aldamótin 2000 borið í sér fræ hrunsins árið 2008. Engum blöðum er um það að fletta að niðursveiflan 2008 hafði víðtæk áhrif á marga þætti samfélagsins þar með talið á umferð og skipulag. Töluleg gögn þessarar rannsóknar sýna greinilegar vísbendingar í þá átt að allt hafi þróast hægar eftir hrun. Einnig bendir margt til þess að ekki hafi mikið breyst í samgöngumálum eftir hrun samanborið við þróun áranna 2000-2008. Þá er ljóst að sá uppgangur sem varð eftir aldamótin heldur ekki áfram með sama hætti eftir hrun. Húsnæðismálin eru eitt af lykilatriðum í úrvinnslu efnahagshrunsins 2008 og endurreisnarstarfi eftirhrunsáranna. Lykilorð: Umferðarskipulag, skipulag þéttbýlis, niðursveifla, efnahagskreppa, töluleg gögn, húsnæðismál.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Páll R Valdimarsson 1963-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31376
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31376

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Páll R Valdimarsson 1963-. Áhrif niðursveiflu efnahagslífs á samgöngur og skipulag : í ljósi kreppunnar á Íslandi 2008. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31376