Back to search

Reykjavík University

Öryggi í iðrum jarðar : úttekt á gerð áhættumats og öryggisáætlana í ferðamannahellum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Ferðamönnum hefur farið hratt fjölgandi á síðustu tíu árum á Íslandi og í dag er Ísland einn af vinsælustu áfangastöðum heims meðal ferðamanna. Ósnortin náttúran er mesta aðdráttaraflið og ferðir sem leiða fólk undir yfirborð jarðar verða sífellt vinsælli. Ísland er eldfjallaeyja og því er mikilvægt að ferðaskipuleggjendur geri sér grein fyrir ábyrgð sinni hvað varðar öryggi ferðamanna á áfangastöðum þar sem lítið má út af bregða til að smáóhapp vindi upp á sig og verði að stórslysi. Skortur á löggjöf er eitt stærsta vandamálið sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir þar sem framkvæmd öryggismála er komin undir metnaði hvers fyrirtækis. Þetta býður hættunni heim og því var ákveðið að skoða hver staða öryggismála væri hjá þeim fyrirtækjum sem hafa einkaafnot af hendi landeigenda til að vera með rekstur og stýrðan aðgang að hellum. Fimm fyrirtæki tóku þátt í rannsókninni sem fór fram með hálfopnum viðtölum og vettvangsheimsóknum. Niðurstöður gefa til kynna að þrátt fyrir að fyrirtækin séu að sinna sínu öryggishlutverki vel og séu með virkar öryggisáætlanir þá er þörf á gæðakerfi sem fyrirtækin geta aðlagað starfsemi sinni. Hugsanlega mætti þó nýta gæðakerfi Vakans betur en það þyrfti að einfalda svo auðveldara væri að laga það að mismunandi starfsemi skipuleggjenda dagsferða. Þá er skortur á eftirfylgni augljós galli á gæðakerfinu og því mikilvægt að löggjafinn skerpi á reglum og samþykki löggjöf sem skýrir kröfur til ferðaskipuleggjenda um öryggi ferðamanna á áfangastöðum og veiti aukið fjármagn til Ferðamálastofu til eftirfylgni útgefinna vottana.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlía Hrönn Guðmundsdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31345
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31345

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlía Hrönn Guðmundsdóttir 1973-. Öryggi í iðrum jarðar : úttekt á gerð áhættumats og öryggisáætlana í ferðamannahellum á Íslandi. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31345