Back to search

Reykjavík University

,,Þetta kerfi er bara mannanna verk" : tækifæri til samþættingar þjónustu grunnskóla, heilsugæslustöðva og þjónustumiðstöðva við börn og unglinga með geðheilbrigðisvanda

Abstract

dc:description.abstract

Sé sjónum beint að börnum og unglingum með geðheilbrigðisvanda hafa fagaðilar og foreldrar löngum kallað eftir skýrari ábyrgðar- og verkaskiptingu milli ólíkra þjónustuaðila í geðheilbrigðiskerfinu og óskað eftir nánari samþættingu og samfellu í þjónustu við þennan hóp. Í þessari rannsókn var leitast við að skoða hvort þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, heilsugæslustöðvarnar og skólarnir í hverfinu geti starfað betur saman í þágu barna og unglinga. Stuðst var við eigindlega aðferðarfræði þar sem tekin voru viðtöl við starfsfólk þessara stofnana í hverfunum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að viðmælendur töldu helsta samstarfið vera í gegnum fjölskylduteymi heilsugæslunnar og nemendaverndarráðsfundi skólanna. Fram kom að sameiginlegt markmið allra samstarfsaðilanna var að auka vellíðan þeirra barna, unglinga og fjölskyldna sem þurfa á þjónustunni að halda. Viðmælendur töldu ólík hugmyndafræði þessara stofnana ekki vera hindrun til frekara samráðs. Biðlistar og „stíflur“ í kerfinu stæði hins vegar í vegi fyrir nánara samstarfi. Vinna þarf áfram í því að finna skilvirka og hentuga leið til samstarfs, í gegnum fjölskylduteymin, sameiginleg úrræði og önnur samstarfsverkefni. Finna þarf leiðir til að halda utan um sameiginlega málaskrá, með aðgangsstýringum, til þess að halda betur utan um árangur hvers máls fyrir sig. Flestir töldu framtíðarsýnina liggja í samstarfslíkaninu ,,Familiens hus“, eða Fjölskylduhús, sem starfað er eftir í sveitarfélögum í Noregi. Í fjölskylduhúsi er heilsugæslan- félags- og skólaþjónustan starfrækt undir sama þaki. Markmið Fjölskylduhússins er því að tryggja samfellda og heildstæða félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra. Allir þátttakendurnir höfðu mikinn áhuga á að auka samstarf þjónustumiðstöðvar, heilsugæslu og skóla enn frekar. Því virðast forsendur vera fyrir áframhaldandi þróun á samsstarfi milli þessarar stofnana.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Björk Finnsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31342
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31342

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Björk Finnsdóttir 1974-. ,,Þetta kerfi er bara mannanna verk" : tækifæri til samþættingar þjónustu grunnskóla, heilsugæslustöðva og þjónustumiðstöðva við börn og unglinga með geðheilbrigðisvanda. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31342