Back to search

Reykjavík University

Hvernig er Agile að reynast íslenskum hugbúnaðarhúsum?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangurinn með þessari rannsókn er að fá innsýn inn í það hversu útbreidd Agile aðferðarfræðin er í skipulagsheildum sem vinna í hugbúnaðaraþróun. Spurningalisti var sendur á einstaklinga sem starfa í hugbúnaðarheiminum og var vonin að fá svar við þremur spurningum um Agile. Hversu útbreidd er notkun Agile, hvernig hefur Agile hjálpað og hvaða vandamál fylgja innleiðingu þess? Niðurstaðan úr rannsókninni var borin saman við niðurstöður í sambærilegri rannsókn sem fyrirtækið VersionOne framkvæmir árlega. Agile virðist vera með svipaða útbreiðslu á Íslandi og erlendis, einnig virðist Scrum vera sú aðferðarfræði vinsælust í báðum niðurstöðunum. Hugmyndafræðin hefur einnig verið álíka lengi í notkun, yfir 30% segjast hafa verið að nota Agile í 5 ár eða lengur. Rannsakandi komst að þeirri niðurstöðu að huga þarf betur að þroska fyrirtækja í Agile með því efla og innleiða Agile meira inn í menningu þeirra. Einnig þarf auka við þekkingu þeirra sem nota Agile, hvort sem það eru stjórnendur eða aðrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Örn Bjarnason 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31304
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31304

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Örn Bjarnason 1983-. Hvernig er Agile að reynast íslenskum hugbúnaðarhúsum?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31304