Reykjavík University
„...aldrei spurt um kostnað þegar um líf er að ræða“ : greiðsluvilji og viðhorf almennings gagnvart heilbrigðiskerfinu og þjónustu þess
Abstract
dc:description.abstractHeilbrigðiskerfið á Íslandi og þjónusta þess hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár. Í þessari rannsókn er ánægja Íslendinga gagnvart heilbrigðiskerfinu og þjónustu þess skoðuð. Varpað verður ljósi á væntingar almennings til gæða í heilbrigðisþjónustu og hvað almenningi finnst réttlætanlegt að heilbrigðiskerfið greiði fyrir meðferð. Sérstaklega er horft til heilbrigðisstefnu stjórnvalda og trausts til heilbrigðiskerfisins. Rannsókn þessi hefur tvímælalaust gildi fyrir heilbrigðisyfirvöld vegna fyrirhugaðrar stefnumörkunar stjórnvalda og til glöggvunar á viðhorfi almennings til heilbrigðisþjónustu. Mikilvægi rannsóknarinnar fyrir verkefnastjórnun sem fræðigrein er að varpa ljósi á mikilvægi þess að hafa skýra stefnu til að vinna eftir og forgangsraða verkefnum út frá henni. Engin gild stefna heilbrigðisyfirvalda er til staðar í málaflokknum og kallað hefur verið frekari formfestu. Höfundar töldu því eftirsóknarvert að skoða með hliðsjón af þeim vísi að heilbrigðisstefnu sem kemur fram í markmiðum stjórnvalda hvort heilbrigðiskerfið standi undir væntingum almennings og hvort almenningi þyki réttmæt sú nálgun sem kemur fram í yfirlýsingu ráðherra „að aldrei skuli spurt um kostnað þegar um líf er að ræða“. Helstu niðurstöður eru þær að meirihluti landsmanna, eða 65%, er ánægður með heilbrigðisþjónustuna, 53% segja væntingar sínar til heilbrigðisþjónustunnar uppfylltar að miklu leyti og 65% bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins. Meirihluti svarenda, eða 56% aðspurðra, telur heilbrigðisþjónustu á Íslandi vera verri en á hinum Norðurlöndunum og segir heilbrigðiskerfið uppfylla illa markmið laga um að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Afgerandi meirihluta svarenda, 81%, finnst of litlum fjármunum varið til heilbrigðiskerfisins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir 1982-
- Jakob Falur Garðarsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31303
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31303