Back to search

Reykjavík University

Vinnuvernd

Abstract

dc:description.abstract

Atvinna er mikilvæg í lífi okkar allra og verjum við flest stærstum hluta fullorðinsævi okkar í vinnunni. Við gerum flest öll þá kröfu að fara heim úr vinnunni í sama líkamlega ástandi og þegar við mættum til hennar. Á vinnustöðum leynast oft ýmsar slysahættur og álag í starfi getur einnig haft skaðleg áhrif á heilsu okkar. Þessi ritgerð fjallar um vinnuvernd. Annars vegar vinnuvernd sem felst í reglum, settum með það að markmiði að koma í veg fyrir vinnuslys og atvinnusjúkdóma. Hins vegar vinnuvernd sem felst í rétt þess aðila, sem hefur orðið fyrir líkamstjóni af völdum vinnuslyss, til bóta. Markmið ritgerðarinnar er að veita heildstætt yfirlit yfir vinnuvernd. Í ritgerðinni verður megináhersla lögð á að rannsaka þær reglur sem stuðla að forvörnum slysa. Þá verða lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980 krufin með það að markmiði að rannsaka tilgang þeirra. Þrátt fyrir að sett sé ítarleg löggjöf um, hvernig sé hægt að koma í veg fyrir vinnuslys og atvinusjúkdóma, er ljóst að aldrei hægt að koma í veg fyrir öll slys. Því verður einnig fjallað um bótaréttarleg úrræði þeirra sem hafa orðið fyrir líkamstjóni af völdum vinnuslyss eða atvinnusjúkdóma. Þótt áður hafi verið fjallað um þessi bótaréttarlegu úrræði í fræðilegum skrifum fær höfundur ekki séð að fyrr hafi verið dregið upp heildstætt yfirlit yfir vinnuverndina líkt og gert er í ritgerð þessari.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Iðunn Líf Gunnarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31291
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31291

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Iðunn Líf Gunnarsdóttir 1991-. Vinnuvernd. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31291