Back to search

Reykjavík University

Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu: Inntak og túlkun tilskipunar 96/71/EB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og íslenskur réttur

Abstract

dc:description.abstract

Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu: Inntak og túlkun tilskipunar 96/71/EB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og íslenskur réttur. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á réttarstöðu útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu og hér á landi. Útsendur starfsmaður er starfsmaður sem sendur er af atvinnurekenda í því skyni að veita þjónustu í tiltekinn tíma á yfirráðasvæði annars EES-ríkis en þess sem hann starfar venjulega í. Útsendir starfsmenn gegna mikilvægu hlutverki á innri markaði og þá sérstaklega í tengslum við frjálsa þjónustustarfsemi milli EES-ríkja. Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu hefur valdið miklum ágreiningi þar sem ekki hefur náðst jafnvægi á milli reglna innri markaðar og félagslegrar verndar útsendra starfsmanna. Í ritgerðinni verður fjallað um frelsið til að veita þjónustu og ástæður þess að útsendir starfsmenn falla undir reglur 36.- 39. gr. EES-samningsins. Þá verður gert grein fyrir inntaki tilskipunar 96/71/EB um útsenda starfsmenn. Með tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna var reynt að samræma lágmarksreglur um útsenda starfsmenn og setja viðeigandi vernd fyrir þá. Næst verður dómaframkvæmd Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins reifuð ítarlega. Töluvert hefur reynt á réttindi útsendra starfsmanna fyrir Evrópudómstólnum og hefur túlkun dómstólsins valdið miklum ágreiningi. Þá verður vikið að réttarstöðu útsendra starfsmanna á Íslandi. Tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna var innleidd með lögum nr. 45/2007. Verður fjallað um ákvæði laga nr. 45/2007 og lagt mat á hvort lögin samrýmast tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna. Stuttlega verður gert grein fyrir breytingartillögu laga nr. 45/2007 sem hefur verið lögð fyrir Alþingi. Jafnframt verður fjallað um mál Primera Air Nordic sem reyndi á gildissvið laga nr. 45/2007 og heimildir íslenskra stéttarfélaga gagnvart erlendum þjónustufyrirtækjum. Að auki verður litið til tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um breytingar á tilskipun 96/71/EB um útsendra starfsmanna. Að lokum verða aðalatriði ritgerðarinnar dregin saman og gert grein fyrir niðurstöðum höfundar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31284
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31284

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexandra Kjærnested Arnarsdóttir 1993-. Réttarstaða útsendra starfsmanna á Evrópska efnahagssvæðinu: Inntak og túlkun tilskipunar 96/71/EB um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu og íslenskur réttur. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31284