Back to search

Reykjavík University

Innleiðing viðskiptagreindar: Leiðir innleiðing á viðskiptagreindarkerfi til aukins árangurs hjá stórum íslenskum fyrirtækjum?

Abstract

dc:description.abstract

Viðskiptagreind (e. business intelligence) er samansafn af hugbúnaði og þjónustu sem ætlaður er til þess að greina gögn og upplýsingar á gagnlegan máta frá mismunandi upplýsingakerfum í þeim tilgangi að styðja við betri ákvörðunartöku. Á síðustu árum hefur notkun á viðskiptagreindarlausnum aukist verulega í takt við tækniþróunina í heiminum og er því áhugavert að rannsaka það nánar. Viðskiptagreindarkerfi gefa stjórnendum færi til að bregðast fljótt við breytingum á markaðinum sem gerir þeim kleift að ná samkeppnisforskoti og geta þannig unnið að því að ná markmiðum fyrirtækisins. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að helsti kostur viðskiptagreindar er tímasparnaður og helsta hindrun innleiðingarinnar er þekkingarleysi starfsmanna á viðskiptagreind. Í ritgerðinni er að finna umfjöllun um viðskiptagreind og ferlið sem fylgir því að innleiða viðskiptagreindarlausnir hjá stórum íslenskum fyrirtækjum. Greint verður frá helstu hindrunum, helstu kostum, fjárhagslegum ávinning og þeim vandamálum sem stjórnendur þurfa að varast við innleiðingu. Tekin voru hálfopin viðtöl við stjórnendur hjá fimm stórum íslenskum fyrirtækjum og eitt viðtal við stjórnanda hjá ráðgjafafyrirtæki. Farið verður yfir upplifun og reynslu viðmælanda hjá hverju fyrirtæki fyrir sig og borið saman svör þeirra. Samræmi var í svörum viðmælenda rannsóknarinnar og niðurstöður leiddu í ljós að stjórnendur töldu að innleiðing á viðskiptagreindarkerfi hafi leitt til aukins árangurs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Olga Ýr Georgsdóttir 1994-
  • Telma Lind Ásgeirsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30823
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30823

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Olga Ýr Georgsdóttir 1994-; Telma Lind Ásgeirsdóttir 1993-. Innleiðing viðskiptagreindar: Leiðir innleiðing á viðskiptagreindarkerfi til aukins árangurs hjá stórum íslenskum fyrirtækjum?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30823