Back to search

Reykjavík University

Notkun hermilíkana við stjórnun og skipulag á spítölum

Abstract

dc:description.abstract

Spítalar eru mikilvægir hlekkir í þjónustukeðju heilbrigðiskerfisins og er eðli starfsemi þeirra flókin sem veldur margvíslegum áskorunum í rekstri, skipulagi, stjórnun og við ákvarðanatöku. Í dag eru síauknar kröfur á spítala að veita skilvirka gæðaþjónustu og tryggja um leið hámarksöryggi fyrir minni kostnað. Slíkt krefur stjórnendur til að leita gagnreyndra leiða við upplýsta ákvarðanatöku sem og árangursríkra leiða við endurbætur á þjónustu. Hermilíkön hafa víða verið notuð í spítalarekstri erlendis í þeim tilgangi en hafa lítið sem ekkert verið notuð á spítölum hér á landi. Í rannsókninni er leitast við að svara því hvernig hermilíkön geta nýst við stjórnun og skipulag á íslenskum spítölum. Rannsóknaraðferðin er eigindleg og byggir á fimm viðtölum við einstaklinga sem hafa þekkingu og reynslu af notkun hermilíkana. Leitast er við að spegla reynslu þeirra inn í spítalaumhverfið. Helstu niðurstöður eru þær að margvísleg tækifæri eru fyrir hermilíkön í spítalarekstri. Líkönin eru vel til þess fallin að endurspegla og öðlast skilning á flóknum kerfum sem einkennast af breytileika og keðjuverkun líkt og einkennir spítalastarfsemi. Það að geta gert tilraunir á starfseminni í áhættulausu umhverfi hermilíkansins er einn helsti ávinningur þeirra fyrir spítala. Þá gagnast þau við ákvarðanatöku, sérstaklega þegar taka þarf kostnaðarsamar ákvarðanir sem geta haft afdrifaríkar afleiðingar í flóknu og viðkvæmu spítalaumhverfi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að aðgerðarrannsóknir geti spilað mun stærra hlutverk við stjórnun og skipulag á íslenskum spítölum, það krefst þverfaglegt samstarfs og eru verkefnastjórar þar í lykilhlutverki. Lykilorð: Hermilíkön, sjúklingaflæði, stjórnun, spítalar, aðgerðarrannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Júlíana Guðrún Þórðardóttir 1977-
  • Steinunn Ingvarsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28982
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28982

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlíana Guðrún Þórðardóttir 1977-; Steinunn Ingvarsdóttir 1982-. Notkun hermilíkana við stjórnun og skipulag á spítölum. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28982