Reykjavík University
Einstaklingmiðuð styrkþjálfun fyrir knattspyrnukonu : tímabilaskipt og einstaklingsmiðuð styrkþjálfun fyrir knattspyrnukonu frá byrjun undirbúningstímabils til enda undirbúningstímabils
Abstract
dc:description.abstractKnattspyrnukona í 1.deild á Íslandi var sett í styrkþjálfun sem íþróttafræðinemi leiðbeindi henni í gegnum frá byrjun undirbúningstímabils til enda þess, samhliða knattspyrnu- og styrkþjálfun frá félaginu. Styrkþjálfuninn var tímabilsskipt í líkamlegan aðlögunarfasa, hámarksstyrkfasa og umbreytingarfasa. Hámarkshraða-, snerpu og hraðaþolsmælingar voru gerðar á viðfangsefninu og liðinu hennar í enda janúar og enda apríl. Engar mælingar voru gerðar í byrjun undirbúningstímabils vegna meiðsla iðkandans. Marktækur munur var á bætingu iðkandans í snerpu og hraðaþoli en ekki var marktækur munur á hámarkshraða. Lóðréttur stökkkraftur jókst um 11 cm frá desember til maí, en ekki var mældur stökkkraftur hjá liðinu. Niðurstöður gefa vísbendingu um að tímabilaskipt styrkþjálfun auki líkamleg afköst hjá knattspyrnukonum, erfitt er að mæla hvort einstaklingsmiðaða þjálfunin vegi jafn mikið þar sem áherslurnar í tímabilaskiptingunni í styrkþjálfuninni hjá liðinu voru ekki þær sömu og voru í rannsókninni. Áhugavert væri að hafa knattspyrnuliðið í tímabilsskiptri styrkþjálfun með áherslum sem eru í samræmi við kenningar um tímabilaskiptingu og að hafa nokkra einstaklinga úr þeim hópi í einstaklingsmiðaðri styrkþjálfun með sömu tímabilaskiptingu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jón Einar Hjaltested 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28870
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28870