Back to search

Reykjavík University

Stöðugreining á Ungmennafélagi Aftureldingar

Abstract

dc:description.abstract

Hvernig verður framþróunin hjá Ungmennafélagsins Aftureldingar (UMFA)? Tilgangur ritgerðarinnar er að gera hagnýtt verkefni sem nýtist við gerð stefnumótunar fyrir félagið og draga fram þá þætti sem taka þyrfti til endurskoðunar í uppbyggingu félagsins. Stöðugreining er mikilvægur hluti af stefnumótunarferli og nýtist verkefni þetta sem hluti stöðugreiningar í stefnumótun félagsins. Við greininguna var unnið að miklu leyti út frá hugmyndum og áliti forsvarsmanna deilda sem og formanns félags og framkvæmdarstjóra þess. Notast var bæði við megindlegar og eigindlegar aðferðir við gagnasöfnun frá formönnum, yfirþjálfurum og öðrum stjórnarmönnum innan hverrar deildar. Sendur var út spurningalisti og honum fylgt eftir með viðtölum. Þá fóru fram eigindleg viðtöl við framkvæmdastjóra, formann UMFA og við bæjarstjóra sveitarfélagsins. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að skortur á formfestu og skýrleika í verklagi, boðleiðum og samskiptum innan félagsins og út úr því virðist hefta öra framþróun félagsins. Áherslur, stefna og verklag virðast haldast í hendur við stefnu og sýn þeirra sem sitja við stjórnvölinn hverju sinni. Þetta leiðir af sér að tími, orka og vinnuframlag félagsmanna, sjálfboðaliða og starfsmanna nýtist ekki sem skyldi sökum illa skilgreindra hlutverka þeirra, ábyrgðar og boðleiða til annarra þátta starfsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Davíð Svansson 1985-
  • Þrándur Gíslason Roth 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28852
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28852

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Svansson 1985-; Þrándur Gíslason Roth 1988-. Stöðugreining á Ungmennafélagi Aftureldingar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28852