Reykjavík University
Persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins nr. 2016/679 : áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins sem kemur til framkvæmda á árinu 2018. Markmið umfjöllunarinnar er að greina þau áhrif sem helstu nýmæli reglugerðarinnar koma til með að hafa á lítil og meðalstór fyrirtæki. Meðferð persónuupplýsinga spilar sífellt stærra hlutverk í starfsemi fyrirtækja á tækniöld. Auk þess hefur fjölgað gríðarlega í hópi fyrirtækja á borð við samfélagsmiðla og skýjaþjónustur, þar sem meginþungi starfseminnar snýr beinlínis að meðferð slíkra upplýsinga þvert á öll landamæri. Er því óhætt að segja að þörfin á uppfærðri og samræmdri löggjöf á sviðinu hafi verið brýn og er reglugerðinni ætlað að svara því kalli. Lítil og meðalstór fyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki í hagkerfi sambandsins og segja má að þau séu burðarás evrópsks viðskiptalífs. Þannig fellur gríðarstór hluti fyrirtækja innan sambandsins í þann flokk. Enn fremur útvega þau u.þ.b. tvö af hverjum þremur störfum innan einkageirans í sambandinu auk þess sem meira en helmingur þeirrar heildarvirðisaukningar sem skapast hjá fyrirtækjum innan þess má rekja til slíkra fyrirtækja. Liggur nauðsyn þess að greina áhrif hinnar nýju reglugerðar á þessa aðila því í augum uppi. Ljóst er að öryggi persónuupplýsinga mun aukast til muna með tilkomu reglugerðarinnar. Að sama skapi krefjast ákvæði hennar hins vegar umfangsmikilla aðgerða af hálfu þeirra fyrirtækja sem með upplýsingarnar vinna. Auk þess að stuðla að bættu öryggi er markmið reglugerðarinnar jafnframt að samræma framkvæmd innan sambandsins og uppfæra og einfalda álagðar byrðar í takt við tímann. Með þetta fyrir augum virðast undantekningar frá skyldum á grundvelli stærðar á undanhaldi og er frekar litið til umfangs og eðlis vinnslunnar hverju sinni. Er því ljóst að lítil og meðalstór fyrirtæki verða í eldlínunni ekki síður en önnur og þurfa að leggja bæði tíma og vinnu í að undirbúa sig fyrir það sem koma skal.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Rósa Kristinsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28332
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28332