Back to search

Reykjavík University

Samkeppnisreglur, útboð og opinber innkaup

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar, sem fjallar um samkeppnisreglur, útboð og opinber innkaup, er að sýna fram á hvenær og við hvaða aðstæður reglum samkeppnisréttar verður beitt við opinber innkaup, einkum á sviði útboða. Í öðrum og þriðja kafla ritgerðarinnar er farið yfir réttarsviðin með ítarlegum hætti og þær reglur dregnar fram sem helst hafa þýðingu fyrir efni ritgerðarinnar. Í fjórða kafla er síðan farið yfir markmið réttarsviðanna og þau borin saman. Fjallað er um hvernig skýra skuli lögin séu ákvæði þeirra ósamþýðanleg og nokkrir dómar Evrópudómstólsins þar sem tekist hefur verið á um viðfangsefnið reifaðir. Þá er í fimmta kafla farið yfir það hvenær hinn opinberi kaupandi fellur undir samkeppnislög við framkvæmd innkaupa sinna. Í kafla sex er svo farið yfir háttsemi hins opinbera og því velt upp við hvaða aðstæður háttsemi þess í opinberum útboðum gæti farið á skjön við samkeppnislög. Auk þess er farið yfir hugsanleg samkeppnishamlandi áhrif reglna um opinber innkaup. Næst, í kafla sjö, er farið yfir það hvernig bjóðendur í útboði geti raskað samkeppni með háttsemi sinni, einkum með samráði um gerð tilboða. Að endingu er svo farið yfir við hvaða aðstæður bjóðendum getur verið heimilt að stunda samstarf í opinberum útboðum. Höfundur rökstyður í ritgerðinni að beita skuli samræmisskýringu við lögskýringu laga um opinber innkaup og samkeppnislaga. Farið er yfir hvenær hinn opinberi kaupandi fellur undir reglur samkeppnislaga við framkvæmd innkaupa sinna og komist að því að þrátt fyrir að opinber útboð sem slík geti talist efnahagsleg starfsemi og fallið þannig undir samkeppnislög þá verða þau ekki skilin frá tilætluðum notum vörunnar sem boðin er út. Sé varan því ætluð til nota í starfsemi sem byggð er upp á félagslegum grunni verður hinn opinberi kaupandi ekki talinn fyrirtæki í skilningi samkeppnislaga og þar með fellur útboðið í heild utan gildissviðs laganna. Höfundur rökstyður svo hvernig hinn opinberi kaupandi geti hugsanlega gerst brotlegur við samkeppnislög í innkaupum sínum. Auk þessa er komist að því að bjóðendur geti gerst brotlegir við samkeppnislög í opinberum útboðum en stundi þeir samstarf um gerð tilboða sinna, sem hefur samkeppnisleg áhrif, þurfa þeir að sækja um undanþágu frá samkeppnislögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Ingvar Magnússon 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28322
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28322

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Ingvar Magnússon 1992-. Samkeppnisreglur, útboð og opinber innkaup. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28322