Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er fjallað um forsvaranlega aðferð neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (hér eftir hgl.). Auk þess lýtur umfjöllun almennt um neyðarvörn, skilyrðum neyðarvarnar samkvæmt 12. gr. hgl., sögu ákvæðisins og hvað telst til ólögmætrar árásar í skilningi ákvæðisins. Þá er litið til þess álitaefnis er snýr að tímamörkum árásar. Einnig er neyðarvarnarákvæði íslensku hegningarlaganna borið saman við neyðarvarnarákvæði Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Í ritgerðinni er jafnframt litið til þess þegar farið er út fyrir takmörk leyfilegrar neyðarvarnar, þ.e. refsileysisástæður 2. mgr. 12. gr. hgl. og refsilækkunar- og refsibrotfallsástæður 74. gr. sömu laga. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar felst í umfjöllun um forsvaranlega aðferð við beitingu neyðarvarnar og mat dómstóla á þessu skilyrði neyðarvarnarverks. Eðli málsins samkvæmt er viðfangsefni ritgerðarinnar nálgast með skoðun á dómum Hæstaréttar þar sem álitefni var hvort forsvaranlegri aðferð hafi verið beitt við framkvæmd neyðarvarnarverks. Þá var enn fremur horft til norræns réttar hvað varðar mat dómstóla á forsvaranlegri aðferð. Ljóst er að mat dómstóla á forsvaranleika neyðarvarnarverks er matskennt og oft á tíðum erfitt. Hæstiréttur virðist ekki alltaf vera samstíga í slíku mati eins og fram kemur í ritgerð þessari. Dómstóllinn lítur þá fremur til refsilækkunar- og refsibrotfallsástæðna þegar um vafatilvik er að ræða en örsjaldan er sýknað á grundvelli 12. gr. hgl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristján Ágúst Flygenring Pétursson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28287
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28287