Reykjavík University
Aðgangur þriðja aðila að gögnum í tengslum við skaðabætur í einkamálum
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er áhersla lögð á að gera skil á þeim leiðum sem tjónþolum stendur til boða í íslenskum rétti til að fá aðgang að gögnum og upplýsingum sem nauðsynleg eru til að meta umfang tjóns vegna samkeppnisbrota. Brot á samkeppnisreglum skaða samfélagið í heild. Ekki einungis fyrirtæki sem starfa á tilteknum markaði heldur viðskiptavini og neytendur eða svokallaða þriðju aðila, sem þar eiga viðskipti. Byrjað er á að fjalla um þær reglur sem eru til staðar í löggjöf í dag samkvæmt stjórnsýslulögum og þann aðgang sem upplýsingalög veita almenningi. Jafnframt er gerð grein fyrir ákvæðum einkamálalaga sem hægt er að beita til að komast yfir sönnunargögn sem liggja hjá tjónvaldi og kannað hvort þau skili árangri. Í þessu tilliti er litið til fjölda dómafordæma í íslenskri réttarframkvæmd og þeim gerð skil. Farið er yfir þau vandkvæði sem tengjast upplýsingaskiptum milli keppinauta í tengslum við rekstur ágreiningsmála á milli þeirra. Umbeðnar upplýsingar geta verið þess eðlis að þær varða innsta kjarna fyrirtækja og mega þar af leiðandi ekki fara í hendur annarra og hvað þá til samkeppnisaðila. Þar koma sjónarmið um upplýsingaskipti samkvæmt 10. gr. samkeppnislaga til skoðunar og vikið að því hvort íslensk löggjöf hafi að geyma úrræði þegar svo stendur á. Því næst er stuttlega gert grein fyrir nýsettri tilskipun Evrópusambandsins um skaðabætur vegna brota gegn samkeppnisreglum Evrópusambandsins og aðildarríkja. Að lokum eru helstu niðurstöður ritgerðarinnar dregnar saman og þeim gerð skil.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hörn Harðardóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28282
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28282