Reykjavík University
Framtíð sjónvarps á Íslandi : áhrif erlendra efnisveita og tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað
Abstract
dc:description.abstractFyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði hafa gengið í gegnum miklar breytingar á síðustu árum. Innkoma erlendra efnisveita og stöðug tækniþróun hefur ekki aðeins breytt áhorfsvenjum neytenda heldur einnig hvernig þeir nálgast sjónvarpsefni. Í þessari ritgerð verður fjallað um þau áhrif sem tækniþróun og innkoma erlendra efnisveita hefur haft á leiðandi fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Ásamt því að farið verður yfir þær áherslur sem fyrirtækin hafa sett sér á tímum stöðugra tæknibreytinga og alþjóðavæðingar. Rannsókn var framkvæmd með eigindlegum rannsóknaraðferðum, þar sem skyggnst var inn í reynsluheim stjórnenda stærstu fyrirtækjanna á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Settar voru fram fjórar rannsóknarspurningar, fyrst var rannsakað þau áhrif sem innkoma erlendra efnisveita hefur haft á íslenskan sjónvarpsmarkað. Því næst voru áhrif tækniþróunar á íslenskan sjónvarpsmarkað rannsökuð. Í þriðja lagi var framtíð línulegs áhorfs rannsökuð og síðast var staða auglýsinga á íslenskum sjónvarpsmarkaði rannsökuð. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að tækniþróunin sem og erlendar efnisveitur hafi haft umtalsverð áhrif á rekstur íslenskra fyrirtækja á sjónvarpsmarkaði. Þau hafi þurft að skerpa á sínum áherslum og jafnvel endurskoða reksturinn í heild sinni. Rekstur á sjónvarpsmarkaði sé næmur fyrir breytingum, huga þurfi að mörgum þáttum eins og samningamálum, breyttri neytendahegðun og tækniþróun en þessir þættir spili allir stór hlutverk á sjónvarpsmarkaði. Niðurstöðurnar gefa þó til kynna að íslensk fyrirtæki á sjónvarpsmarkaði séu samkeppnishæf gagnvart erlendu efnisveitunum. Þau muni geta sinnt hlutverki sem ekki er séð fram á að erlendar efnisveitur muni koma til með að sinna í náinni framtíð. Lykilorð: Auglýsingar, efnisveitur, línulegt áhorf, sjónvarpsmarkaður, tækniþróun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Axel Ingi Kristinsson 1994-
- Kristófer Róbertsson 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28184
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28184