Reykjavík University
Bætur fyrir þvingunarráðstafanir á grundvelli 228. gr. laga um meðferð sakamála : hvernig er fjárhæð miskabóta vegna þvingunarráðstafana ákveðin hjá dómstólum
Abstract
dc:description.abstractÍ 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferðsakamála er kveðið á um hlutlæga bótaskyldu íslenska ríkisins vegna þvingunarráðstafana á grundvelli IX –XIV. kafla laganna. Með ákvæðinu er hverjum þeim, sem hefur mátt þola þvingunarráðstafanir vegna rannsóknar eða meðferðar sakamáls, tryggður réttur til bóta ef mál hans hefur verið fellt niður eða hann verið sýknaður með endanlegum dómi, án þess þó að það hafi verið gert vegna þess að hann var talinn ósakhæfur. Þá er ákvæðinu ætlað að bæta fjártjón jafnt sem miska. Meginviðfangsefni þessarar ritgerðarer að skoða til hvers dómstólar líta við ákvörðun fjárhæða miskabóta á grundvelli 228. gr. Ekki verður ráðið af sakamálalögunum né forsögu þeirra hvaða atriði það eru sem fallið geta undir miska samkvæmt ákvæðinu. Erlendis, meðal annars í Danmörku, hafa verið settar reglur um staðlaðar fjárhæðir miskabóta en á Íslandi hafa dómarar ávallt ákveðið fjárhæðmiskabóta á grundvelli matskenndra sjónarmiða í hverju tilviki fyrir sig. Meginefni ritgerðarinnar grundvallast á rannsókn á öllum birtum dómum sem fallið hafa í héraðsdómi Reykjavíkur og Hæstarétti Íslands, þar sem fallist hefur verið á bótaskyldu íslenska ríkisins á grundvelli 228. gr. sakamálalaga síðan ákvæðið tók gildi í janúar 2009. Skoðaðar voru forsendur og sjónarmið að baki ákvörðunumum fjárhæð miskabóta. Þá var reynt að meta hvort samræmi væri í ákvörðun fjárhæða miskabóta sem dæmdar hafa verið á grundvelli ákvæðisins í sambærilegum málum í héraði og fyrir Hæstarétti. Í þeim tilvikum sem ósamræmi var talið vera fyrir hendi var reynt að leita skýringa á orsökum ósamræmisins.Rannsóknin leiddi í ljós að nokkurt misræmi sem erfitt er að skýra virðist vera í dóma-framkvæmd hvað varðar fjárhæðir miskabóta í sambærilegum málum. Í ritgerðinni var leitast við að svara því hvort einhverra aðgerða væri þörftil að samræma dómaframkvæmd á þessu sviði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Guðmundsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26741
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26741