Back to search

Reykjavík University

Mótun og framkvæmd stefnu meðal 300 stærstu fyrirtækja á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Fyrirtæki og stofnanir þurfa að geta tekist á við óvissu og óþekktar aðstæður framtíðarinnar. Stefnumótun er mikilvægt verkfæri til að átta sig á hvert fyrirtæki hyggst halda og er stefna þess mikilvæg þegar kemur að vali og forgangsröðun verkefna. Eitt er stefna og annað er framkvæmd stefnu. Að stefnu sé ekki framfylgt getur átt sér ýmsar skýringar. Meðal annars geta mannleg samskipti og þekking á verkefnastjórnun skipt sköpum. Þetta verkefni svarar því hversu algengt það er að íslensk fyrirtæki beiti stefnumótun sem tæki til stjórnunar og hversu vel stefnumótun hefur gengið hjá þeim. Einnig er hér að finna svör við því hvernig þeim hefur gengið að framfylgja stefnunni og hvort aðferðir verkefnastjórnunar komi þar við sögu. Niðurstöður fengust með því að senda spurningalista til 101 forstjóra fyrirtækja sem valin voru úr lista 300 stærstu fyrirtækja á Íslandi úr bók Frjálsrar verslunar. Það kom í ljós að stór hluti fyrirtækja hefur á síðustu árum farið í stefnumótun og flest þeirra náðu að klára ferlið. Að framfylgja áætlunum og að ná markmiðum gekk aftur á móti misvel. Beiting á aðferðum verkefnastjórnunar skiptir miklu máli þegar ráðist er í slík verkefni sem stefnumótun og framkvæmd stefnu eru. Þeir sem beittu flestum aðferðum við undirbúning og framkvæmt stefnumótunar gekk að öllu jöfnu einnig betur að framfylgja áætlunum og að ná markmiðum stefnunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Magnúsdóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25628
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25628

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Magnúsdóttir 1966-. Mótun og framkvæmd stefnu meðal 300 stærstu fyrirtækja á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25628