Back to search

Reykjavík University

Klasastjóri : hæfni og áskoranir

Abstract

dc:description.abstract

Alþjóðlegt markaðsumhverfi eru aðstæður dagsins í dag. Því fylgja aukin samskipti, flóknari tengsl og örari breytingar á flestum sviðum. Klasar eru ákveðinn vettvangur samstarfs og eru vel þekktir sem slíkir. Klasastarfsemi hefur aukist á heimsvísu en þróun síðasta áratugar hefur verið í vaxandi mæli á aukin gæði klasaverkefna umfram fjölda þeirra. Klasastjóri fer fyrir klasaverkefni og hann þarf helst að búa yfir góðri samskiptafærni og leiðtogafærni til að takast á við áskoranir starfsins. Áherslur í starfi klasaverkefna fara mjög eftir þeim geira sem þau starfa í og hvar á líftíma sínum þau eru stödd. Klasastjóri er bæði stjórnandi og leiðtogi sem þarf að byggja árangur sinn á sterku tengslaneti sem hann þarf að skapa með öfluguri tengslamyndun í gegnum eigið áhrifavald og trúverðugleika. Verkefni klasastjóra tengjast mjög sterkt verkefnastjórnun og þeim hæfnisþáttum sem hún byggir á, og getur hæfni og/eða reynsla á því sviði nýst vel fyrir klasastjóra. Viðfangsefnið hér var að kanna nánar stöðu klasastjórans. Spurningakönnun var send til íslenskara klasaverkefna til að fá mat þeirra á hlutverk, hæfni og áskoranir klasastjóra. Til samanburðar eru skoðaðar heimildir um samskonar efni. Starf klasastjórans er afar áhugavert, fjölbreytt og krefjandi. Það treystir á eiginleika og hæfni klasastjórans, og gerir kröfur um góða samskiptafærni og leiðtogafærni, sem og skilning á umhverfi klasans og hæfni í tengslamyndun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Björn Ólafsson 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25626
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25626

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Björn Ólafsson 1968-. Klasastjóri : hæfni og áskoranir. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25626