Abstract
dc:description.abstractÞroskalíkön eru gagnleg til þess að meta stöðu verkefnastjórnunar innan fyrirtækja. Þau draga fram styrkleika og veikleika fyrirtækja í stjórnun verkefna. Eins er aðferðin frekar einföld og hægt að velja á milli líkana sem henta hverju fyrirtæki sem best. Mikil fjárfestingarbylgja stendur yfir hjá íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Sem dæmi má nefna fjárfestingar í nýjum skipum, breytingar á eldri skipum og fjárfestingar í nýrri vinnslutækni. Það eru því gríðarmörg verkefni sem eru í gangi í sjávarútvegsfyrirtækjum tengd þessum fjárfestingum. Þroski verkefnastjórnunar hjá íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum er þó ekki mikill, aðferðir eru nokkuð handahófskenndar og ekki er samræmi innan fyrirtækja um sýn á verkefnastjórnun. Það er því eftir nokkru að slægjast hjá sjávarútvegsfyrirtækum í að bæta ferla sína þegar kemur að verkefnastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnlaugur Eiríksson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25623
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25623