Back to search

Reykjavík University

Þjálfarar og íþróttakennarar framtíðarinnar : eru fitufordómar á meðal íþróttafræðinema og íþróttafræðinga á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Rannsóknir sýna að í vestrænum samfélögum eru fitufordómar til staðar á meðal heilbrigðisstarfsfólks, einstaklinga sem starfa við þjálfun og á meðal íþróttafræðinema. Markmið þessarar rannsóknar var því að kanna hvort fitufordómar séu til staðar á meðal íþróttafræðinga og íþróttafræðinema á Íslandi og bera saman við viðmiðunarhóp sem samanstendur af sálfræðingum og sálfræðinemum. Aðferð: Samtals tóku 497 þátt í rannsókninni, 131 (26,4%) íþróttafræðinemi, 116 (23,3%) sálfræðinemar, 60 (12,1%) íþróttafræðingar og 190 (38,2%) sálfræðingar. Af þátttakendum voru 341 kona (68,8%) og 155 karlar (31,2%). Lagðir voru fyrir þrír sjálfsmatskvarðar til að meta viðhorf til feitra (AFA), viðhorf til útlits, hreysti og heilsu (MBSRQ) og félagslega yfirráðahyggju (SDO). Niðurstöður: Allir hópar sýndu neikvæð viðhorf í garð feitra en íþróttafræði- og sálfræðinemar sýndu neikvæðari viðhorf í garð feitra á öllum undirkvörðum en sálfræðingar (p<0,05). Íþróttafræðingar telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk en sálfræðingar (p<0,05). Ekki var munur á fitufordómum hjá íþróttafræðinemum á fyrsta og þriðja ári. Íþróttafræðinemar voru með meiri félagslega yfirráðahyggju en aðrir hópar (p<0,05). Yngsti aldurshópurinn er haldinn meiri fitufordómum en þeir sem eldri eru (p<0,05). Karlar hafa meiri andúð á feitum og telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk (p<0,05). Konur eru hins vegar hræddari við að fitna (p<0,05). Munur á hópunum er ekki tilkominn vegna aldurs- né kynjamunar í úrtaki. Ályktun: Íþróttafræðingar og íþróttafræðinemar sýna fitufordóma. Út frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum skiptir máli að reyna að koma í veg fyrir mismunun og útrýma fitufordómum á meðal íþróttafræðinga. Sérstaklega vegna tengsla íþróttafræðinga við forvarnarstarf barna í grunnskólum. Einnig þar sem íþróttafræðingar sinna þjálfun á feitum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Berglind Jónsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25544
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25544

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Berglind Jónsdóttir 1984-. Þjálfarar og íþróttakennarar framtíðarinnar : eru fitufordómar á meðal íþróttafræðinema og íþróttafræðinga á Íslandi?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25544