Back to search

Reykjavík University

Quis custodiet ipsos custodes? Hverjir eiga að gæta varðanna? : eftirlit með starfsháttum og starfsemi lögreglu: Gagnrýni og mögulegar úrbætur

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að gera grein fyrir því eftirliti sem haft er með störfum lögreglu á Íslandi. Eftirlitið hefur verið til umræðu á undanförnum misserum og sætir fyrirkomulag þess, þegar ritgerð þessi er skrifuð, gagnrýni. Þá hefur endurskoðun á eftirlitinu verið sett í gang og lagðar hafa verið fram nokkrar tillögur til úrbóta, sem á einn eða annan hátt er ætlað að efla eftirlitið. Í ljósi þeirrar gagnrýni sem verið hefur uppi á gildandi fyrirkomulagi verður í ritgerð þessari leitast við að svara þeirri spurningu hvar tilefni sé til úrbóta og hvaða leið sé vænlegust í þeim efnum. Í því sambandi verður ekki hjá því komist að beina sjónum að þeim alþjóðlegu mannréttindaskuldbindingum sem íslenska ríkið hefur undirgengist og snúa að þessu eftirliti. Þá verður litið til tillagna alþjóðastofnana í þessum málaflokki og þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í nágrannaríkjum Íslands undanfarin ár. Að lokum verða síðan lagðar fram tillögur til úrbóta. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að vænlegast sé að haga eftirliti með störfum lögreglu á Íslandi í samræmi við þær tillögur sem alþjóðastofnanir á vettvangi Evrópuráðsins og Sameinuðu þjóðanna hafa sett fram, til þess að treysta stöðu borgaranna við meðferð kvartana og kærumála á hendur lögreglu. Ásamt meðferð mála í þeim tilvikum þegar aðgerðir eða aðferðir lögreglu leiða til dauðsfalla eða stórfellds líkamstjóns meðan sá sem fyrir slíku verður var í umsjón lögreglu, óháð því hvort uppi er grunur um refsivert brot. Telur höfundur að breytingar á eftirlitinu til samræmis við tillögur alþjóðastofnana séu best til þess fallnar að mæta alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum og að auka traust almennings á störfum og eftirliti með lögreglu. Þannig fái borgararnir hlutlausa meðferð sjálfstæðs og óháðs aðila hverju sinni, í málum sem varða samskipti þeirra við lögreglu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Emilía Ýr Jónsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25516
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25516

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Emilía Ýr Jónsdóttir 1991-. Quis custodiet ipsos custodes? Hverjir eiga að gæta varðanna? : eftirlit með starfsháttum og starfsemi lögreglu: Gagnrýni og mögulegar úrbætur. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25516