Abstract
dc:description.abstractMeginviðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða lagalega stöðu óhefðbundinna lækninga samkvæmt lögum um græðara, nr. 34/2005. Sú rannsóknarspurning sem leitast er við að svara er hvort lagabreytinga sé þörf í ljósi reynslunnar af framkvæmd laganna. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laganna skal endurskoða lögin ekki seinna en 5 árum eftir gildistöku þeirra. Það hefur ekki verið gert. Óhefðbundnar lækningar eiga sér langa sögu á Íslandi. Með stofnun embættis landlæknis árið 1760 var ólærðum, bannað að stunda lækningar. Þeir sem eftir það stunduðu óhefðbundnar lækningar voru þá nefndir skottulæknar. Það var svo ekki fyrr en lög um græðara tóku gildi árið 2005 að óhefðbundnar lækningar voru lögleiddar á Íslandi ásamt reglugerð um frjálst skráningarkerfi græðara. Áður höfðu norsk og dönsk stjórnvöld innleitt lög um óhefðbundnar meðferðir. Þau lög voru í forgrunni þegar íslensku lögin voru samin og er frumvarp til laga um græðara í grunninn það sama og norska frumvarpið um sama efni. Í ljósi þess að íslensku lögin hafa ekki verið endurskoðuð var löggjöf Noregs og Danmerkur skoðuð ásamt þeim breytingum sem þar hafa verið gerðar til að varpa ljósi á þá þróun sem orðið hefur í löggjöf landanna og bera það saman við stöðu óhefðbundinna lækninga á Íslandi. Í viðtölum var leitast eftir að fá innsýn í reynslu fagaðila af löggjöfinni og því regluverki sem henni fylgir, með tilliti til þess hvort lagabreytinga væri þörf. Í samanburði við Norðurlöndin má sjá að Ísland hefur dregist aftur úr hvað löggjöfina varðar. Helsta niðurstaðan er sú að íslensku lögin eru ekki nógu afdráttarlaus og eru oft á tíðum óræðin. Að mati höfundar er lagabreytingar þörf. Æskilegt er að löggjöf sé skýr og gefi borgurunum lágmarks leiðbeiningar um réttindi sín. Helsti annmarki laganna er að í þeim eru hvorki ákvæði um eftirlit eða tilkynningarskyldu með starfsemi græðara, né ákvæði um tilkynningar/ábendingar vegna starfsemi þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bryndís Axelsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25515
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25515