Back to search

Reykjavík University

Áhrif vöruinnsetninga á vörumerkjavirði

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna áhrif vöruinnsetninga í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á vörumerkjavirði. Fjallað verður um uppsetningu viðskiptavinagrundaðs vörumerkjavirðis og rannsökuð nánar vitund, ímynd og tryggð vörumerkja og hvaða þætti þarf að huga að við uppbyggingu vörumerkjavirðis. Þessi fræðilega umfjöllun er byggð á hugmyndafræði fræðimannsins Kevin Lane Keller. Þar að auki verður sett fram skilgreining vöruinnsetningar, birtingarform, saga og þróun, hvað hefur gefið góða raun og einnig hvað þarf að varast til þess að ná sem mestum ávinningi með þessari kynningarleið. Í ritgerðinni er fjallað um tvær rannsóknir sem voru framkvæmdar. Annars vegar eigindleg rannsókn þar sem að tvö einstaklingsviðtöl voru tekin við aðila sem gátu veitt dýpri innsýn í viðfangsefnið. Hins vegar megindleg rannsókn þar sem sett var fram spurningakönnun til þess að fræðast um áhrif vöruinnsetninga meðal almennings. Helstu niðurstöður gefa til kynna að vöruinnsetning getur haft mikil áhrif á vörumerkjavirði en þau áhrif geta bæði verið neikvæð og jákvæð. Ef að fyrirtæki sjá til þess að vöruinnseting sé vönduð og sérstaklega sé gætt að því að koma á framfæri þeirri staðfærslu um vörumerkið sem fyrirtækið sækist eftir, þá getur þessi kynningarleið haft gríðarlega jákvæð áhrif á vörumerkjavirði. Lykilorð: vörumerkjavirði, vörumerkjavitund, ímynd vörumerkja, vörumerkisauðkenni, samval söluráðanna, tengingar annarra, vöruinnsetning, staðfærsla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gerður Dóra Aðalsteinsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25387
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25387

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gerður Dóra Aðalsteinsdóttir 1993-. Áhrif vöruinnsetninga á vörumerkjavirði. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25387